Bæjarstjórn Kópavogsbæjar fundaði með fulltrúum ungmennaráðs bæjarins og fulltrúum grunnskólabarna Kópavogsbæjar á dögunum.
Fulltrúar grunnskólabarna kallaðir barnaþingmenn mættu til fundarins með sjö tillögur sem eru afrakstur skólaþinga í grunnskólum bæjarins og Barnaþings sem haldið var í mars síðastliðnum. Barnaþing vann úr tillögunum og setti í umsögn og kosningu meðal barna bæjarins. Þá kynntu fulltrúar ungmennaráðs fjórar tillögur sem eru afrakstur ungmennaþings.
Meðal tillagna barnaþingmanna var að stytta skóladaginn, fara í fleiri vettvangsferðir í skólum bæjarins og að boðið verði upp á meiri aðstoð í heimanámi fyrir alla nemendur en þessar þrjár tillögur nutu mestrar hylli í nemendakönnun. Aðrar tillögur voru aukin áhersla á listir og verklegt nám, jafnt aðgengi, símareglur og fartölvur í stað spjaldtölva.
Fulltrúar ungmennaráðs lögðu til betri aðstöðu og viðhald sparkvalla, bætta vellíðan nemanda með aukinni fræðslu, öryggi á bílastæðum og meiri flokkun.
Bæjarfulltrúar fögnuðu tækifærinu til að funda með börnum og ungmennum og voru til svara eftir að hver og ein tillaga hafði verið borin upp . Tillögurnar verða svo settar í farveg innan sveitarfélagsins.