Listaverki Sirru varpað á Kópavogskirkju

Nýju listaverki eftir Sirru Sigrúnu Sigurðardóttur myndlistarmann var varpað á Kópavogskirkju 4. og 5. febrúar sl. í tilefni Vetrarhátíðar í Kópavogi.

Verk Sirru, sem var gert sérstaklega fyrir form Kópavogskirkju og í samtali við list Gerðar Helgadóttur, var gert að beiðni Kópavogsbæjar í tilefni Vetrarhátíðar. Hátíðin var að þessu sinni lágstemmd og voru ljósaverk og listaverk utandyra í forgrunni.

Sækir innblástur til verka Gerðar Helgadóttur

Verk Sirru eru kosmísk í eðli sínu og tengjast vangaveltum um stöðu okkar í gangverki náttúru, eðlisfræði og þeirra afla sem halda heiminum gangandi. Nýtt verk Sirru sækir innblástur í verk Gerðar Helgadóttur; vitnað er til lita og forma í gler- og mósaíkverkum Gerðar, en jafnframt til áhuga hennar á gangi himintungla, dulspeki og tengingu mannsins við alheiminn.

Vakið verðskuldaða athygli fyrir list sína

Sirra Sigrún lauk BA prófi frá Listaháskóla Íslands árið 2001 og útskrifaðist með meistaragráðu frá School of Visual Arts í New York 2013. Hún hefur haldið einkasýningar í Listasafni Reykjavíkur, Nýlistasafninu, Listasafni Árnesinga, Hafnarborg og Kling & Bang og tekið þátt í fjölda sýninga víða um heim, þar á meðal í Kína, Finnlandi, Bandaríkjunum og Bretlandi.

Sirra hefur vakið verðskuldaða athygli fyrir list sína og m.a. fengið styrki og viðurkenningar úr listasjóðum Svavars Guðnasonar, Guðmundu Andrésdóttur og verðlaun Guðmundu S. Kristinsdóttur. Sirra Sigrún var listamaður Kærleikskúlunnar 2021.

Nýjustu greinarnar

Tengdar greinar

Vefkökur og persónuvernd

Vefur kgp.is notast við vefkökur í þeim tilgangi að veita þér sem bestu upplifun þegar þú heimsækir okkur á vefnum.  Vefkökurnar eru vistaðar í vafranum þínum og þjóna m.a. þeim tilgangi að kerfið "þekkir þig" þegar þú kemur aftur á vefinn okkar.  Þannig þarftu t.d. ekki að fara aftur í gegnum samþykktarferlið fyrir vefkökur, ert ekki spurð(ur) aftur og aftur hvort þú vilt skrá þig á póstlista eða um aðra virkni sem þú hefur annað hvort samþykkt eða hafnað í fyrri heimsóknum o.fl. o.fl.

Þú getur stillt vefkökurnar hér til vinstri.

Með kærri kveðju,
Starfsfólk KGP.is vefsins