Í vikunni hlupu nemendur og kennarar „Lindaskólasprettinn“ í Lindaskóla í Kópavogi. Lindaskólaspretturinn er hlaupinn ár hvert og er áheitahlaup til styrktar góðu málefni hverju sinn. Nemendur hlaupa ákveðna leið í nærumhverfi skólans og er hringurinn sem þau hlaupa 1,25 km á lengd. Nemendur fá svo fjölskyldu og vini til að heita á sig 100 krónur fyrir hvern hring sem þau hlaupa. Þau þurfa að hlaupa lágmark 2 hringi og hámark 8 hringi. Í ár var ákveðið að láta ágóðann renna til Styrktarfélags krabbameinssjúkra barna. María Guðnadóttir íþróttakennari í Lindaskóla afhenti Hörpu Halldórsdóttur fyrir hönd SKB 270. 000 krónur sem söfnuðust í hlaupinu. Veðurguðirnir voru með nemendur og kennurum í liði þennan dag og það voru glaðir nemendur sem fengu sér hressingu eftir afrek dagsins.
Vefur kgp.is notast við vefkökur í þeim tilgangi að veita þér sem bestu upplifun þegar þú heimsækir okkur á vefnum. Vefkökurnar eru vistaðar í vafranum þínum og þjóna m.a. þeim tilgangi að kerfið "þekkir þig" þegar þú kemur aftur á vefinn okkar. Þannig þarftu t.d. ekki að fara aftur í gegnum samþykktarferlið fyrir vefkökur, ert ekki spurð(ur) aftur og aftur hvort þú vilt skrá þig á póstlista eða um aðra virkni sem þú hefur annað hvort samþykkt eða hafnað í fyrri heimsóknum o.fl. o.fl.
Þú getur stillt vefkökurnar hér til vinstri.
Með kærri kveðju,
Starfsfólk KGP.is vefsins