Dagar ljóðsins fara fram í Kópavogi 21. – 27.janúar með fjölbreyttu og spennandi viðburðahaldi
Ljóðstafur Jóns úr Vör
Upphaf Daga ljóðsins í ár markast af afhendingu Ljóðstafs Jóns úr Vör, sem veittur er 21. janúar ár hvert en við sama tilefni verða veitt verðlaun og viðurkenningar í ljóðasamkeppni grunnskólanna. Ljóðstafur Jóns úr Vör hefur verið haldinn árlega frá 2002 og fagnar því 22 ára afmæli sínu í ár en hátíðin fer ávallt fram á afmælisdegi skáldsins Jóns úr Vör og í hans minningu. Á meðal skálda sem hlotið hafa Ljóðstafinn í gegnum tíðina eru Gerður Kristný, Linda Vilhjálmsdóttir, Óskar Árni Óskarsson, Anton Helgi Jónsson og Þórdís Helgadóttir. Athöfnin fer fram í Salnum, sunnudaginn 21.janúar kl. 16. Þar verður boðið upp á ljóðalestur, lifandi tónlist og léttar veitingar og öll hjartanlega velkomin.

Ljóðstafur Jóns úr Vör verður veittur á afmælisdegi skáldsins, 21.janúar næstkomandi
Glæný ljóð og eldgömul
Glæný ljóð verða í brennidepli á Bókasafni Kópavogs, miðvikudaginn 24.janúar kl. 17 þegar skáldin Draumey Aradóttir, Guðmundur S. Brynjólfsson, Harpa Rún Kristjánsdóttir og Melkorka Ólafsdóttir lesa upp úr nýútkomnum ljóðabókum sínum sem hverfast um margvísleg viðfangsefni. Boðið verður upp á léttar veitingar og öll innilega velkomin.
Í Salnum í Kópavogi verður sjónum beint að ljóðlist að fornu og nýju á ljóðamálþingi sem Óðfræðifélagið Boðn efnir til til í Salnum, Kópavogi, laugardaginn 27.janúar frá 12 – 15 en þangað er allt áhugafólk um ljóð og óðfræði boðið velkomið.
Nærandi söngstund fyrir fjölskylduna
Þau Ragnheiður Gröndal söngkona og Guðmundur Pétursson gítarleikari bjóða upp á notalega söngstund fyrir alla fjölskylduna á Bókasafni Kópavogs, laugardaginn 27.janúar frá 13 – 14. Þar gefst börnum og fjölskyldum einstakt tækifæri til að upplifa íslenska texta í gegnum tónlist, söng og sögur úr ólíkum áttum, lög og ljóð sem við þekkjum og eigum saman. Aðgangur á söngstundina er ókeypis og öll hjartanlega velkomin á meðan húsrúm leyfir.
Ljóðaandrými í amstri dagsins
Á meðan Dagar ljóðsins standa yfir verður boðið upp á ljóðaandrými í Beckmannsstofu á Bókasafni Kópavogs. Þar verður hægt að setjast niður í amstri dagsins, slaka á og njóta þess að hlusta á upptökur af ljóðaupplestri nokkurra skálda í notalegu umhverfi en skáldin sem lesa ljóð sín eru Ragnheiður Lárusdóttir, Ólafur Sveinn Jóhannesson, Hildur Kristín Thorstensen, Gunnhildur Þórðardóttir, Eyrún Ósk Jónsdóttir, Eygló Jónsdóttir og Anton Helgi Jónsson.
Á Bókasafni Kópavogs verður jafnframt hægt að skoða ljóð sem bárust í ljóðasamkeppni grunnskóla Kópavogs en sýning með þeim ljóðum verður sett upp á jarðhæð safnsins. Einnig verða flutt vídeó með upplestri allra ljóðskálda sem hlotið hafa Ljóðstaf Jóns úr Vör frá upphafi.
Það er lista- og menningarráð Kópavogs sem styrkir Daga ljóðsins.
Forsíðumynd: Ragnheiður Gröndal og Guðmundur Pétursson halda nærandi söngstund fyrir alla fjölskylduna á Dögum ljóðsins