Lesið á milli línanna

Langar þig að hitta skemmtilegar og hressar konur í bókaspjall? Lesið á milli línanna á aðalsafni er akkúrat þannig klúbbur og í október verða tvær mjög áhugaverðar bækur til umfjöllunar, Minn hlátur er sorg, Ævisaga Ástu Sigurðardóttur og Vinkonur eftir Rögnu Sigurðardóttur. Svo skemmtilega vill til að verið er að sýna leikrit um Ástu Sigurðardóttur í Þjóðleikhúsinu um þessar mundir og því tilvalið að slá tvær flugur í einu höggi, mæta og spjalla um bókina og sjá síðan leiksýninguna um skáldkonuna. Bókaklúbburinn hentar öllum konum sem vilja hittast og spjalla um yndislestur á léttum nótum og er næst á dagskrá þann 7. október kl. 16:30. Hist verður síðan fyrsta fimmtudag í mánuði á fundum í vetur. Hlökkum til að sjá ykkur!

Nýjustu greinarnar

Tengdar greinar