Leikskólanum Efstahjalla lokað vegna myglu

Ákveðið hefur verið að loka húsnæði leikskólans Efstahjalla í Kópavogi frá og með deginum í dag vegna myglu og rakaskemmda sem komið hafa í ljós í skólanum. Starfsemi skólans fellur niður í tvo daga meðan unnið er að endurskipulagningu. Þegar hefur verið hafist handa við að útvega starfseminni annað húsnæði. 

Rúmlega níutíu börn dvelja í leikskólanum sem er fimm deilda. Foreldrar og forráðamenn barna í leikskólanum hafa verið upplýst og fundað með starfsfólki um málið.  

Leka varð vart í tengibyggingu milli yngri og eldri hluta Efstahjalla í sumar. Mygluskemmdir í tengibyggingunni voru staðfestar í september og foreldrar og forráðamenn upplýst um þær í kjölfarið. Við rif á lofta- og veggjaklæðningu í ganginum kom í ljós umtalsvert meiri skemmdir en gert var ráð fyrir og því ákveðið að fara í sýnatöku víðar í húsinu.  

Nú um helgina bárust niðurstöður úr seinni sýnatöku sem staðfesta að myglu má finna á fleiri stöðum í skólanum. Því er gripið til þeirra varúðarráðstafana að loka leikskólanum.  

Næstu vikur verða notaðar til að kanna nánar ástand hússins og ákveða næstu skref.  

Nýjustu greinarnar

Tengdar greinar

Vefkökur og persónuvernd

Vefur kgp.is notast við vefkökur í þeim tilgangi að veita þér sem bestu upplifun þegar þú heimsækir okkur á vefnum.  Vefkökurnar eru vistaðar í vafranum þínum og þjóna m.a. þeim tilgangi að kerfið "þekkir þig" þegar þú kemur aftur á vefinn okkar.  Þannig þarftu t.d. ekki að fara aftur í gegnum samþykktarferlið fyrir vefkökur, ert ekki spurð(ur) aftur og aftur hvort þú vilt skrá þig á póstlista eða um aðra virkni sem þú hefur annað hvort samþykkt eða hafnað í fyrri heimsóknum o.fl. o.fl.

Þú getur stillt vefkökurnar hér til vinstri.

Með kærri kveðju,
Starfsfólk KGP.is vefsins