Leggjum línurnar

Þessa dagana stendur yfir á Náttúrufræðistofu Kópavogs sýningin Leggjum línurnar, en snemmárs 2021 fékk Náttúrufræðistofan styrk úr Loftslagssjóði fyrir samnefnt loftslagsverkefni sitt. Verkefnið er ætlað 10. bekkingum og nú á haustönn tóku um 400 nemendur í sjö grunnskólum í Kópavogi þátt í fyrstu fyrirlögn þess undir stjórn kennara sinna, verkefnastjóra Náttúrufræðistofu og Sævars Helga Bragasonar, vísindamiðlara.

Sýningin Leggjum línurnar hefur að geyma afrakstur vinnu allra þátttakenda, en verkefnið var fjölþætt og myndaði samfellt ferðalag frá hinum smáa skala nærumhverfisins yfir í hinn stóra hnattræna og gaf á þann hátt m.a. góða innsýn í muninn á veðri og loftslagi. Nokkrum litlum veðurstöðvum var komið fyrir á ólíkum stöðum í Kópavogi og nemendum bauðst að gera raunmælingar á veðri, afla áþreifanlegra gagna og setja í samhengi við umhverfi sitt. Í kjölfarið útvíkkuðu þeir rannsóknarsvið sitt yfir á heimsvísu og unnu sk. loftslagslínur (e. climate stripes) fyrir mismunandi lönd í heiminum. Þá rýndu þeir gögn um ýmsa félags-, efnahags- og umhverfislega þætti í rannsóknarlöndum sínum og tengdu heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun.

Meðal leiðarljósa verkefnisins var greinargóð fræðsla um loftslagsmál og fjölbreytt verkefnavinna byggð á raunverulegum gögnum. Þar að auki var leitast við að skapa tækifæri til valdeflandi samtals, ígrundunar og lausnaleitar hjá nemendahópunum, meðal annars með umræðufundum undir stjórn Sævars Helga. Með lokasýningunni er og skapaður vettvangur þar sem heildarniðurstöður allra þátttakenda eru dregnar saman í áhrifaríka hnattræna heild.

Sýningin Leggjum línurnar stendur til og með 23. nóvember á opnunartíma Náttúrufræðistofunnar (mán. – föst. kl. 8-18 og laug. kl. 11-17). Aðgangur ókeypis og allir velkomnir. Vegna hertra samkomutakmarkana hefur fyrirhuguðum fjölskyldudegi, sem til stóð að halda þann 20. nóvember í tengslum við sýninguna, verið frestað til betri tíma.

Nýjustu greinarnar

Tengdar greinar