Kynningarfundur vegna fyrstu lotu Borgarlínu, sem liggur milli Hamraborgar og Ártúnshöfða

Haldinn verður kynningarfundur vegna fyrstu lotu Borgarlínu, sem liggur milli Ártúnshöfða og Hamraborgar, miðvikudaginn 15. janúar kl. 17.00 í safnaðarheimili Kópavogskirkju, Borgum, Hábraut 1a.

Fundurinn er haldinn til kynningar á umhverfismatsskýrslu þessarar fyrstu lotu og til að kynna tillögur að rammahluta aðalskipulags.

Þar er meðal annars fjallað um legu Borgarlínunnar, staðsetningu stöðva og umhverfisáhrif framkvæmda og reksturs Borgarlínunnar. Jafnframt er fjallað um mismunandi útfærslur á hönnun göturýma og forgang virkra ferðamáta og almenningssamgangna. Öll velkomin!

Umhverfismatsskýrslan og skipulagstillögurnar eru aðgengilegar í Skipulagsgáttinni hjá Kópavogsbæ þar sem öll geta kynnt sér gögnin og veitt umsögn en gögnin voru sett inn í nóvember. Athugasemdafrestur er til 25. janúar 2025.

Einnig verður haldinn sambærilegur kynningarfundur í Reykjavík í dag klukkan 17 í Tjarnarsal Ráðhúss Reykjavíkur.

Nýjustu greinarnar

Tengdar greinar

Vefkökur og persónuvernd

Vefur kgp.is notast við vefkökur í þeim tilgangi að veita þér sem bestu upplifun þegar þú heimsækir okkur á vefnum.  Vefkökurnar eru vistaðar í vafranum þínum og þjóna m.a. þeim tilgangi að kerfið "þekkir þig" þegar þú kemur aftur á vefinn okkar.  Þannig þarftu t.d. ekki að fara aftur í gegnum samþykktarferlið fyrir vefkökur, ert ekki spurð(ur) aftur og aftur hvort þú vilt skrá þig á póstlista eða um aðra virkni sem þú hefur annað hvort samþykkt eða hafnað í fyrri heimsóknum o.fl. o.fl.

Þú getur stillt vefkökurnar hér til vinstri.

Með kærri kveðju,
Starfsfólk KGP.is vefsins