Lögð voru fram fjörutíu og átta tilboð frá átta aðilum í byggingarrétt lóða í Vatnsendahvarfi í nýafstöðnu útboði. Útboðið, sem lauk á hádegi sl. þriðjudag, var fyrsti áfangi úthlutunar í Vatnsendahvarfi. Í boði voru sex lóðir lítilla fjölbýla svonefndra klasahúsa, tveggja og þriggja hæða auk bílakjallara. Stærð lóða var frá 3300 m2 upp í 7285 m2.
Hæsta tilboðið í Roðahvarf 1-15 hljóðaði upp á 722.680.000 kr. frá GG verk ehf og næst hæsta tilboðið í viðkomandi lóð var upp á rétt rúmar 706 milljónir kr. Lægsta tilboðið í lóðina við Roðahvarf 1-15 var frá Húsvirki ehf, sem bauð 398.400.000 kr. og er það tæpum 324 milljónum kr. lægra en tilboð GG verk.
Svörtu Hamrar áttu besta tilboðið í fjórar af sex lóðum, en hver aðili getur eingöngu fengið að hámarki tvær lóðir samkvæmt útlhutunarreglum Kópavogsbæjar, sem þýðir samkvæmt tilboðunum að GG verk, sem átti hæsta tilboðið í eina lóð og MótX sem átti einnig hæsta tilboðið í eina lóð geta bætt við sig sitthvorri lóðinni til viðbótar út frá tilboðunum.
Fimm verktakar af átta fengu ekki lóð
Samkvæmt tilboðunum þá fá fimm verktakar af átta, sem sóttu um lóð, ekki úthlutaða lóð eins og staðan er í dag, en þetta eru fyrirtækin, Húsvirki, Fjarðarmót, Sérverk, Dverghamrar og Öxar byggingarfélag.
Einstakt hverfi staðsett á hæsta punkti höfuðborgarsvæðsins
,,Virkilega ánægjulegt að sjá hversu mikil þátttaka er í útboðinu og verður spennandi að fylgjast með þeirri uppbyggingu sem er framundan á þessu nýja hverfi í Kópavogi. Vatnsendahvarfið er einstakt hverfi staðsett á hæsta punkti höfuðborgarsvæðsins og augljóslega mikill áhugi á hverfinu. Í næsta áfanga verður lóðum fyrir sérbýli úthlutað,” segir Ásdís Kristjánsdóttir bæjarstjóri Kópavogs.
Tekið var á móti tilboðum í gegnum útboðsvef Kópavogsbæjar. Hæstu tilboð verða metin út frá úthlutunarskilmálum hvort þau teljist gild og svo tekin til afgreiðslu á fundi bæjarráðs fimmtudaginn 30. maí og í kjölfarið til afgreiðslu bæjarstjórnar.
Í Vatnsendahvarfi verða 500 íbúðir í fjölbýli og sérbýli og fellur byggðin vel að nágrenninu. Lögð er áhersla á umhverfisvæna byggð og góðar samgöngutengingar fyrir akandi, hjólandi og gangandi vegfarendur.
Tilboðsgjafar sem áttu hæsta boð eru skuldbundnir til að leggja inn umsókn um byggingarleyfi eigi síðar en 12 mánuðum frá úthlutun lóðar. Úthlutun lóða telst samþykkt frá og með staðfestingu bæjarstjórnar. Stefnt er að því að lóðir í fyrsta áfanga verði byggingarhæfar í apríl 2025. Það var starfsfólk Kópavogsbæjar, þau Jakob Sindri Þórsson verkefnastjóri, Ásthildur Helgadóttir sviðsstjóri, Katrín Arnórsdóttir verkefnastjóri, Alda Kristín Sigurðardóttir deildarstjóri, Ása A. Kristjánsdóttir bæjarlögmaður og Guðrún Edda Finnbogadóttir skrifstofustjóri sem opnuðu og fóru yfir tilboðin.
Eftirvænting eftir næstu úthlutun Í næsta áfanga verður úthlutað einbýlis- húsalóðum, parhúsalóðum, fjölbýlishúsa- lóð og klasahúsalóðum. Stefnt er að því að útboð hefjist síðsumars.
Hér fyrir neðan má sjá tilboðin sem bárust.
Forsíðumynd: Starfsfólk Kópavogsbæjar fer yfir tilboðin! F.v. Jakob, Ásthildur, Katrín, Alda, Ása og Guðrún