Kópavogsbær býður upp á afmælisköku í Smáralind

Boðið verður upp á afmælisköku í Smáralind í tilefni 70 ára afmæli Kópavogsbæjar laugardaginn 10.maí milli 14 og 16.

Ásdís Kristjánsdóttir bæjarstjóri Kópavogs og bæjarfulltrúar munu sjá um að skera kökuna og taka vel á móti gestum og gangandi. Samkór Kópavogs treður upp í tilefni dagsins og þá verður blöðrulistamaður á staðnum. „Ég hlakka mikið til að hitta íbúa og aðra gesti í afmælisskapi en afmæliskakan er hluti af afmælishátíð sem stendur nú um helgina auk þess sem við bryddum upp á ýmsum viðburðum allt árið,“ segir Ásdís Kristjánsdóttir bæjarstjóri Kópavogs. Afmæliskakan er bökuð af Reyni bakara en auk hennar verður boðið upp á drykki frá Ölgerðinni.

Dagskrá afmælishátíðar: 

  • Föstudaginn 9.maí: Boðið upp á afmælisköku í félagsmiðstöðvum eldri borgara.
  • Laugardag 10.maí kl. 14: Afmæliskaka á boðstólum í Smáralind frá klukkan 14.00.  Bæjarstjóri Kópavogs og bæjarfulltrúar mæta og gefa gestum og gangandi ljúffenga afmælisköku í tilefni sjötugsafmælis bæjarins. Blöðrulistamenn og Samkór Kópavogs.
  • Laugardagur 10.maí kl. 11-17: Uppskeruhátíð Barnamenningarhátíðar:  Smiðjur og fjör í Bókasafni Kópavogs og Náttúrufræðistofu.
  • Sunnudagur 11.maí  kl.12-17: Uppskeruhátíð Barnamenningarhátíðar: Smiðjur, Rauðhetta og úlfurinn, Dj. Sunna Ben, Glimmersturta og afmælislög með skólakórum úr Kópavogi, stultur, sápukúlur, vesen og vatnsull með Memm á útisvæði við menningarhúsin og margt fleira. 
  • Þriðjudaginn 13.maí kl. 13: Götuganga Virkni og vellíðan í Kópavogsdal.

Nýjustu greinarnar

Tengdar greinar

Vefkökur og persónuvernd

Vefur kgp.is notast við vefkökur í þeim tilgangi að veita þér sem bestu upplifun þegar þú heimsækir okkur á vefnum.  Vefkökurnar eru vistaðar í vafranum þínum og þjóna m.a. þeim tilgangi að kerfið "þekkir þig" þegar þú kemur aftur á vefinn okkar.  Þannig þarftu t.d. ekki að fara aftur í gegnum samþykktarferlið fyrir vefkökur, ert ekki spurð(ur) aftur og aftur hvort þú vilt skrá þig á póstlista eða um aðra virkni sem þú hefur annað hvort samþykkt eða hafnað í fyrri heimsóknum o.fl. o.fl.

Þú getur stillt vefkökurnar hér til vinstri.

Með kærri kveðju,
Starfsfólk KGP.is vefsins