Karen Elísabet sækist eftir 1. sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í Kópavogi

Karen Elísabet Halldórsdóttir bæjarfulltrúi sækist eftir 1. sæti sjálfstæðismanna í Kópavogi. Hún er með BA gráðu í Sálfræði og meistaragráðu í Mannauðsstjórnun og starfar sem skrifstofustjóri samhliða störfum bæjarfulltrúa.
„Ég óska eftir stuðningi í fyrsta sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Kópavogi þann 12. mars n.k. Undanfarin átta ár hef ég starfað sem bæjarfulltrúi í bæjarstjórn Kópavogs. Á þeim tíma hef ég tekið að mér ýmis trúnaðarstörf í þágu bæjarbúa og aflað mér víðtækrar þekkingar á öllum málaflokkum í rekstri bæjarins. Mér þykir vænt um bæjarfélagið og fólkið sem hér býr, ég vil sjá blómlegt mannlíf ásamt því að bærinn haldi áfram á þeirri vegferð að bæta þjónustu við bæjarbúa. Ég vil leiða lista Sjálfstæðisflokksins í Kópavogi til sigurs næsta vor og tel að reynsla mín og þekking muni nýtast í komandi sveitastjórnarkosningum“.

Karen Elísabet sinnir ýmsum trúnaðarstörfum fyrir Kópavog. Hún er varaformaður bæjarráðs, formaður velferðaráðs, lista- og menningarráðs og öldungaráðs. Einnig hefur hún setið í ráðgjafanefnd Jöfnunarsjóðs Sambands íslenskra sveitafélaga í tæp átta ár og fjögur ár í stjórn Strætó.

Nýjustu greinarnar

Tengdar greinar