Kæri bæjarbúi

Á fjögurra ára fresti fáum við öll tækifæri á að hafa áhrif á bæinn sem við búum í. Núna er sá tími runninn upp, að velja hvernig áhrif þú vilt hafa en kosið verður í prófkjöri okkar sjálfstæðismanna næsta laugardag þann 12. mars í Lindaskóla. Þar getur þú haft áhrif á hvaða bæjarfulltrúa þú vilt sjá í bæjarstjórn næstu fjögur árin.

Mitt val er að bjóða mig fram í bæjarstjórn, þar sem ég hef verið bæjarfulltrúi í átta ár og tekið þátt í miklum breytingum á ásýnd og þjónustu bæjarins. Þjónustu sem snýst um fólkið sem býr í bæjarfélaginu. Við eigum farsæl ár að baki hér í Kópavogi þar sem Sjálfstæðisflokkurinn hefur haldið um stýrið. Kópavogur er vel rekið bæjarfélag og ég vil tryggja að svo verði áfram.

Við höfum markvisst snjallvætt þjónustu bæjarins síðustu ár og ég vil halda því áfram á hagkvæman hátt. Það er misskilningur að bæjarfélag sé eins og hver annar fyrirtækjarekstur. Við veitum samfélagslega og umhverfislega þjónustu innan sveitafélagsins. Vissulega er afar brýnt að halda vel um fjármuni bæjarbúa sem þurfa að standa undir þeirri mikilvægu þjónustu sem er jú, í þeirra þágu. Verkefni sveitafélaganna eru stór og mörg hver lögbundin eins og velferðar- og menntamál ásamt meðhöndlun úrgangs.

Velferðar- og menntamál eru fyrirferðarmikil í rekstrinum og bundin lagalegum skilyrðum og reglugerðum sem samþykkt eru á Alþingi og í ráðuneytum. Því miður er það svo að ekki fylgja alltaf fjármunir þeim samþykktum sem sveitafélögin eru samt skuldbundin að fylgja eftir. Með ráðdeild í rekstri og útsjónarsemi starfsmanna og bæjarfulltrúa í Kópavogi hefur okkur tekist mjög vel að standa undir þeim kröfum sem lagðar eru á herðar okkar.

Af öðrum verkefnum er mikilvægt að nefna að Kópavogur hefur undanfarin ár lagt mikla áherslu á lýðheilsu, forvarnir og hreyfingu í sínum ákvörðunum. Við viljum að fólkinu okkar líði vel í bænum og fái góða þjónustu sem nauðsynleg er til að það sé einfaldlega best að búa í Kópavogi.
Ósk mín er einföld; ég vil að bærinn sem ég ólst upp í verði áfram besti staðurinn til að búa á, besti staðurinn til að eldast í og áfram besti staðurinn til að eiga fjölskyldu í.

Ég óska eftir þínum stuðningi í fyrsta sæti á lista Sjálfstæðisflokksins næsta laugardag og með því vil ég halda áfram að vinna í þágu bæjarins og íbúa.

Taktu þátt og hafðu áhrif.

Karen Elísabet Halldórsdóttir

Nýjustu greinarnar

Tengdar greinar