Iðunn Einars flytur lög af nýrri breiðskífu

Iðunn Einars semur tónlist sem blandar saman eiginleikum popptónlistar og klassískrar tónlistar.  

Iðun mun flytja lög af nýrri breiðskífu sinni fimmtudaginn 20. júlí kl. 17.

Í sumar vinnur Iðunn að því að semja heildstæða plötu í fullri lengd og taka upp vel gerð demó sem verða fljótlega eftir sumarið tilbúin til frekari vinnslu og hljóðblöndunar. Hún hyggst færa popptónlist enn meira inn á svið tónsmíða með áherslu á konsept, flókna sköpun, tilraunamennsku og klassískan hljóðfæraleik í óhefðbundnum aðstæðum. Hún vill kanna ákveðin þemu og hljóðfæri ásamt framandi aðferðum til tónsmíðasköpunnar og sjá hvert það mun leiða.  

Allir velkomnir

Nýjustu greinarnar

Tengdar greinar