Hlutbundin þrá

Laugardaginn 5. júní opnar sýningin Hlutbundin þrá í Gerðarsafni. Fyrir þessa sýningu bauð sýningastjórinn Dagrún Aðalsteinsdóttir átta samtímalistamönnum frá Íslandi og Singapúr að skapa verk sem skoða verðmæti og stigveldi þess sem felst í því að vera hlutur eða mynd. Sýningin er tilraun til þess að skapa gagnkvæma virkni milli hluta og einstaklinga, þar sem listaverkin eru blanda af “hlut og viðfangi.” Sýningin er samtíningur af klippimyndum, skúlptúrum, vídeóverkum og innsetningum. Verkin skoða hlutgervingu mynda sem innihalda þrár og langanir, ásamt umboði og áhrifum slíkra mynda sem eru séðar og dreifðar, jafnvel endurgerðar.

Titillinn á sýningunni vísar í ritgerð eftir Hito Steyerl sem ber nafnið A thing like you and me (2010). Í þeirri ritgerð skoðar Steyerl þátttöku mannsins í að skapa myndir og að veita þeim umboð. Steyerl heldur því fram að sú þátttaka veiti myndum eigin virkni sem afmái skilin milli þess að vera hlutur eða viðfangsefni, einnig gagnvart mennskum viðfangsefnum sem eru sífellt að verða meira hlutgerð. Í ritgerðinni lýsir Steyerl myndum sem brotum eða leifum af veruleikanum en ekki spegilmynd hans; “hlutur eins og hver annar- hlutur eins og ég og þú.”

Listamenn: Daniel Hui, Dagrún Aðalsteinsdóttir, Guo Liang, Guðlaug Mía Eyþórsdóttir, Luca Lum, Styrmir Örn Guðmundsson, Sæmundur Þór Helgason og Weixin Chong.
Sýningarstjórar: Dagrún Aðalsteinsdóttir frá Íslandi og Weixin Chong frá Singapúr.

Nýjustu greinarnar

Tengdar greinar