Hljómsveitin Slagsmál í Digraneskirkju

Hljómsveitin Slagsmál flytur tónlist í sunnudagsmessu í Digraneskirkju þann 16. júlí nk. kl. 11.

Áhöfn djasstvíeykisins Slagsmál er skipuð slaghörpuleikaranum Þórbergi Bollasyni og slagverksleikaranum Kormáki Loga Laufeyjarsyni. Tónlist þeirra einkennist af framsækinni og rytmískri djasstónlist í bland við endurunna klassíska tónlist og fjölbreyttar ábreiður. 

Markmið Slagsmáls í sumar er að semja nýtt efni og gefa út eina breiðskífu í lok sumars ásamt því að koma fram við ýmis tilefni. 

Viðburðurinn er hluti af viðburðaröð Skapandi sumarstarfa í Kópavogi.

Nýjustu greinarnar

Tengdar greinar