Heimili menningarinnar í Kópavogi

Íris María Stefánsdóttir markaðs- og kynningarstjóri MEKÓ

Það hefur vonandi ekki farið fram hjá neinum að menningarmálin í Kópavogi eru nú kynnt undir nýju merki MEKÓ. MEKÓ stendur fyrir Menningu í Kópavogi og endurspeglar menningarstefnu Kópavogsbæjar sem felur í sér þrjár stefnuáherslur, þ.e. að Kópavogsbær leggur áherslu á að menningarstarf sé aðgengilegt öllum bæjarbúum, Kópavogsbær stendur vörð um sérstöðu og faglegt starf menningarhúsa bæjarfélagsins og Kópavogsbær leggur áherslu á víðtækt samstarf við bæjarbúa, svið og deildir bæjarins og lista-, fræði-og vísindamenn úr ólíkum áttum.

Í byrjun september opnaði ný heimasíða MEKÓ og er það von Írisar Maríu Stefánsdóttur, markaðs- og kynningarstjóra MEKÓ, að Kópavogsbúar og landsmenn allir nýti sér þessa síðu til að fræðast um menningarlífið í Kópavogi. „Heimasíða MEKÓ er heimili menningarinnar í Kópavogi og er hugsuð sem vettvangur fyrir lista- og fræðifólk að koma sínum viðburðum, sýningum og menningartengdum fréttum á framfæri. Kópavogur er stórt bæjarfélag sem iðar af menningu og lífi og er hugmyndin sú að á nýju síðunni verði hægt að fá upplýsingar um allt hið blómlega menningarstarf sem fyrirfinnst í Kópavogi,“ segir Íris María. „Á heimasíðunni í dag er hægt að fá upplýsingar um viðburði og sýningar í menningarhúsunum en við viljum líka gefa öðrum færi á að koma sínu menningarstarfi á framfæri. Ég hvet því fólk að vera duglegt að senda á okkur fréttir og upplýsingar um viðburði sem eiga sér stað í Kópavogi.“

Íris María bendir á að hægt er að senda fréttir, upplýsingar um viðburði og myndir á [email protected].
 
Myndatexti: List án landamæra mun opna sýningar í menningarhúsunum 20. október.

Nýjustu greinarnar

Tengdar greinar