Heiðrum minningu Bryndísar Klöru – Minningarstund í Lindakirkju – opin kirkja

Bryndís Klara Birgisdóttir fermdist í Lindakirkju vorið 2021. Líf hennar var tekið á hörmulegan hátt í hnífaárás á Menningarnótt. Hún lést af áverkum sínum á Landspítalanum föstudaginn 30. ágúst.

Í ljósi djúprar sorgar og ákalls samfélagsins um að heiðra minningu Bryndísar mun Lindakirkja opna dyr sínar fyrir almenning á morgun laugardaginn 7. september frá kl. 12:00 til 17:00.  Þá eru liðnar tvær vikur frá voðaverkinu. Á stundinni verður varpað upp myndum sem vinir og fjölskylda hafa tekið saman ásamt minningum um Bryndísi og eftirlætistónlist hennar, valin af vinkonum hennar, mun hljóma. Ekkert talað mál fer fram heldur geta allir sem vilja, komið og tendrað á kerti í minningu Bryndísar, beðið og átt hljóða stund í kirkjunni.

Minningarsjóður Bryndísar Klöru

Því samhliða hefur verið stofnaður Minningarsjóður Bryndísar Klöru. Sjóðurinn er í umsjón KPMG og forseti Íslands, Halla Tómasdóttir, er verndari sjóðsins. Sjóðurinn mun styðja við verkefni sem miða að því að vernda börn gegn ofbeldi og efla samfélag þar sem samkennd og samvinna eru í forgrunni. Sjóðurinn mun einbeita sér að fræðslu, rannsóknum og vitundarvakningu til að koma í veg fyrir að slíkar hörmungar endurtaki sig. Framlög má leggja inn á reikning 0515-14-171717, kennitala 430924-0600.

Skilum inn hnífum

Heiðrum minningu Bryndísar með því að velja líf en ekki hníf. Við biðlum til allra sem bera hnífa að skila þeim til lögreglunnar. Foreldrar Bryndísar óska þess að dauði hennar verði til þess að vopnaburður heyri sögunni til og kærleikurinn verði eina vopnið.

Stöndum saman fyrir öruggara og betra samfélagi.

Nýjustu greinarnar

Tengdar greinar

Vefkökur og persónuvernd

Vefur kgp.is notast við vefkökur í þeim tilgangi að veita þér sem bestu upplifun þegar þú heimsækir okkur á vefnum.  Vefkökurnar eru vistaðar í vafranum þínum og þjóna m.a. þeim tilgangi að kerfið "þekkir þig" þegar þú kemur aftur á vefinn okkar.  Þannig þarftu t.d. ekki að fara aftur í gegnum samþykktarferlið fyrir vefkökur, ert ekki spurð(ur) aftur og aftur hvort þú vilt skrá þig á póstlista eða um aðra virkni sem þú hefur annað hvort samþykkt eða hafnað í fyrri heimsóknum o.fl. o.fl.

Þú getur stillt vefkökurnar hér til vinstri.

Með kærri kveðju,
Starfsfólk KGP.is vefsins