Hausttónleikar Skólahljómsveitar Kópavogs

Skólahljómsveit Kópavogs heldur árlega hausttónleika sína í Háskólabíói miðvikudaginn 3. nóvember kl. 19:30. Tónleikarnir eru jafnframt nokkurs konar uppskeruhátíð hljóðfæraleikaranna sem hafa verið að æfa fyrir þennan viðburð í allt haust. Undanfarin ár hafa ferðir í æfingabúðir verið fastur hluti af undirbúningi Skólahljómsveitar Kópavogs fyrir stóru tónleika starfsársins. Síðasta starfsár féllu æfingabúðirnar þó að mestu niður vegna sóttvarnareglna og var það því heldur betur ánægjulegt þegar ljóst var að hægt væri að halda í æfingaferðir eftir að slakað var á reglunum í haust. Tvær elstu sveitirnar fóru í æfingabúðir í október í Hlíðardalsskóla í Ölfusi og lögðu sig fram um að ná góðum tökum á erfiðum viðfangsefnum sem stendur til að flytja á tónleikunum. Kópavogsbær státar af því að eiga fjölmennustu skólahljómsveit landsins sem að sumra mati er jafnframt ein sú allra besta. Það verður því enginn svikinn af tónleikunum í Háskólabíói.

Nýjustu greinarnar

Tengdar greinar