Hákon ráðinn yfirþjálfari HK

Barna- og unglingaráð HK hefur ráðið Hákon Hermannsson Bridde sem yfirþjálfara yngriflokka hjá HK. Hákon þarf ekki að kynna fyrir HK-ingum en hann lék með HK upp alla yngriflokkana og spilaði fjölmarga leiki með meistaraflokki HK. Þá þjálfaði Hákon um árabil yngri flokka félagsins og kom einnig að þjáfun meistaraflokka HK. Hákon er með BSc gráðu í Sport Science frá Háskólanum í Reykjavík og meistaragráðu í kennslufræðum frá sama skóla. Sem yfirþjálfari mun Hákon leiða það verkefni að efla yngriflokkastarf HK með fræðslu og stuðningi við þjálfara, auk þess að þjálfa sjálfur yngri flokka hjá félaginu. Hákon mun einnig starfa sem handboltaþjálfari við MK akademíuna og leiða afreksstarf HK

Nýjustu greinarnar

Tengdar greinar