Hafðist – en tók á. Glæsileg vinningstillaga kynnt íbúum

Nú hefur verið kynnt niðurstaða úr hugmyndasamkeppni um nýja sýn fyrir næsta uppbyggingaráfanga Glaðheimasvæðisins. ASK arkitektar báru sigur úr bítum en þeirra vinningstillaga gerir ráð fyrir nútímalegu og sjálfbæru hverfi með áherslu á mannvænt og spennandi miðbæjarumhverfi fyrir Kópavog. Í tillögunni er lagt til að Reykjanesbraut verði lögð í stokk og þannig myndist fjöldi nýrra tenginga milli hverfa fyrir alla samgöngumáta og hugað sé um leið að hljóðvist. Áhugavert er að rekja nú örstutt sögu þessa svæðis sem fyrir ekki svo löngu síðan geymdi hesthús og starfsemi hestamanna.

Theodóra S. Þorsteinsdóttir 

Fyrsti áfangi svæðisins gekk hratt og vel fyrir sig og þar hafa nú risið glæsileg fjölbýlishús, hvert öðru fallegra, með torgi, grænu svæði, göngustígum og leiktækjum. Mikil áhersla var lögð á frágang lóða og hlýlegt umhverfi þannig að fólki liði vel í nærumhverfi heimila sinna.

Viðreisn gerði athugasemdir og tillaga dregin til baka

Talsverður vandræðagangur hefur hins vegar verið á skipulagsmálum almennt í Kópavogi síðustu fjögur árin, einnig varðandi næsta uppbyggingaráfanga þessa svæðis.

Fram kom deiliskipulagstillaga sem m.a. gerði ráð fyrir risastórum fjölbýlishúsum ofan í óbreyttri Reykjanesbrautinni. Bæjarfulltrúar Viðreisnar gerðu alvarlegar athugasemdir við þá tillögu, sem einnig var haldin verulegum annmörkum. Hún var því formlega dregin til baka.

Einar Þorvarðarson 

Þá kom fram önnur tillaga frá meirihlutanum sem einnig var afleit enda þótti okkur skipulagið með eindæmum gamaldags. Við höfum í tvígang farið með málið inn í bæjarstjórn sem sérstakt dagskrármál til að bæta þær hugmyndir sem voru lagðar fram. Eftir miklar umræður í bæjarstjórn og fundi okkar í Viðreisn með bæjarstjóra og sviðsstjóra var samþykkt viðaukatillaga um að fara með svæðið í samkeppni. Niðurstaða hennar er sú að metnaðarlaust skipulag meirihlutans verður fellt úr gildi.
Markmið okkar með samkeppninni var að kalla eftir hugmyndum sem styrkja svæðiskjarnann í Smára, efla tengsl á milli hans og Lindanna, staðsetja þar tengistöð fyrir almenningssamgöngur og tengingu við alþjóðaflugvöllinn í Keflavík. Við vildum byggð sem styður við skapandi umhverfi, aukin lífsgæði og fjölbreytt mannlíf, verslun og þjónustu.

Smárinn er ekki bara miðkjarni fyrir allt höfuðborgarsvæðið heldur er hann tækifæri okkar Kópavogsbúa til að hanna miðbæ þar sem fólk nýtur þess að koma, ganga um torg og græn svæði og njóta mannlífs í nútímalegu borgarskipulagi.

Við í Viðreisn göngum nú full tilhlökkunar inn í kosningarnar með nútímalega framtíðarýn fyrir Lindir og Smára á borðinu og hlökkum til að búa til nútímalegt, sjálfbært og spennandi skipulag fyrir Glaðheimasvæðið. Svæði sem skv. hinni nýju tillögu Ask arkiteka verður tengt við Smárann með helstu umferðaræðina í stokk þannig að það þjóni blómstrandi mannlífi Kópavogsbúa framtíðarinnar. Það skiptir máli hvernig hverfi bæjarins eru hönnuð og þar þurfa þarfir íbúanna að vega þyngst. Hverjum ætlar þú að treysta fyrir því?

Theodóra S. Þorsteinsdóttir 
Einar Þorvarðarson 

Bæjarfulltrúar Viðreisnar

Nýjustu greinarnar

Tengdar greinar