Gull á Gíbraltar hjá frjálsíþróttakonum Breiðabliks

Blikinn Birna Kristín Kristjánsdóttir varð um sl. helgi Smáþjóðameistari í langstökki þegar hún setti mótsmet á Smáþjóðameistaramótinu á Gíbraltar með risa stökki upp á 6,46 m en stökkið er jafnframt Íslands- og aldurs-flokkamet í flokki 23 ára og yngri.

Gamla metið var frá 2012 og hljóðaði upp á 6,27 m sem þýðir að Birna Kristín bætti metið um heila 19 cm og er stökkið jafnframt næst lengsta stökk íslenskrar konu frá upphafi! „Mér leið ótrúlega vel og var mjög fersk á mótinu og það fór allt eins og það átti að fara. Ég var létt á mér og gerði öll stökkin gild svo þetta var bara stórkostlegt,“ sagði Birna þegar við heyrðum í henni hljóðið, alsæl með sigurinn og afrekið!

En þetta var ekki eina Blikagullið á Gíbraltar um sl. helgi því Júlía Kristín Jóhannesdóttir sigraði einnig 100 m grindahlaup kvenna á tímanum 14;36 sek. sem þýðir að Breiðablik eignaðist ekki einn Smáþjóðameistara í frjálsum heldur tvo! ,,Við erum að rifna úr stolti og sendum Birnu Kristínu, Júlíu og þjálfarateymi Breiðabliks innilegar hamingjuóskir,” segir Gréta Björg Jakobsdóttir sem situr í stjórn frjálsíþróttadeildar Breiðabliks.
Í næstu viku fara svo um 20 iðkendur úr frjálsíþróttadeild Breiðabliks á Gautaborgarleikana í Svíþjóð.

Júlía Kristín Jóhannesdóttir sigraði 100 m grindahlaup kvenna á tímanum 14;36 sek

Forsíðumynd: Birna Kristín trúði vart sínum eigin augum þegar hún sá hversu langt stökkið var og mótsmetið fallið, en Birna stökk 6,46m

Nýjustu greinarnar

Tengdar greinar

Vefkökur og persónuvernd

Vefur kgp.is notast við vefkökur í þeim tilgangi að veita þér sem bestu upplifun þegar þú heimsækir okkur á vefnum.  Vefkökurnar eru vistaðar í vafranum þínum og þjóna m.a. þeim tilgangi að kerfið "þekkir þig" þegar þú kemur aftur á vefinn okkar.  Þannig þarftu t.d. ekki að fara aftur í gegnum samþykktarferlið fyrir vefkökur, ert ekki spurð(ur) aftur og aftur hvort þú vilt skrá þig á póstlista eða um aðra virkni sem þú hefur annað hvort samþykkt eða hafnað í fyrri heimsóknum o.fl. o.fl.

Þú getur stillt vefkökurnar hér til vinstri.

Með kærri kveðju,
Starfsfólk KGP.is vefsins