Það að eldast er gæfa og við sem á eftir komum eigum fyrri kynslóðum margt að þakka. Aldurssamsetning þjóðarinnar er að breytast og við lifum bæði lengur og betur. Sú þróun er afar jákvæð og er til marks um það öfluga velferðarsamfélag sem hefur verið byggt upp hér á landi á undanförnum áratugum. Öldrun þjóðarinnar er ekki aðeins jákvæð heldur er hún einnig fyrirsjáanleg og það er okkur sem samfélagi mikilvægt að undirbúa hana vel.
Við viljum byggja hér upp aldursvænt samfélag þar sem borin er virðing fyrir einstaklingnum og þörfum hans á öllum æviskeiðum. Við þurfum að gera öllum kleift að viðhalda færni, virkni og sjálfstæði um leið og við þurfum að vera tilbúin að grípa einstaklinga sem þurfa á auknum stuðningi velferðarkerfisins að halda.
Heildarendurskoðun á þjónustu við eldra fólk
Í upphafi kjörtímabilsins var lagt af stað í vinnu við heildarendurskoðun á þjónustu við eldra fólk í samvinnu heilbrigðisráðherra, félags- og vinnumarkaðsráðherra, fjármála- og efnahagsráðherra, Sambandi íslenskra sveitarfélaga og Landssambandi eldri borgara.
Verkefnastjórn, skipuð af heilbrigðisráðherra og félags- og vinnumarkaðsráðherra, var falið í kjölfarið að leiða heildarendurskoðunina og leggja fram aðgerðaráætlun til fjögurra ára. Þann 10. maí 2023 samþykkti Alþingi tillögu til þingsályktunar um metnaðarfulla aðgerðaáætlun um þjónustu við eldra fólk fyrir árin 2023-2027 og fékk verkefnið heitið Gott að eldast.
Samvinna
Verkefnastjórnin hefur lagt ríka áherslu á samvinnu og samráð í sinni vinnu þar sem málaflokkurinn hefur marga snertifleti. Sú áhersla endurspeglast vel í aðgerðaráætluninni sem byggir á fimm stoðum sem snúa að samþættingu, virkni, upplýsingum, þróun og heimili.
Sex heilbrigðisstofnanir og 22 sveitarfélög taka nú þátt í fjölbreyttum þróunarverkefnum víðsvegar um landið sem ganga út á að samþætta félags- og heilbrigðisþjónustu fyrir eldra fólk í heimahúsum. Í framhaldinu verður árangur þessa verkefna og umbóta metinn kerfisbundið og nýtast vel við ákvarðanatöku um framtíðarskipulag þjónustu við eldra fólk.
Það er mikilvægt að eitt þjónustustig taki hnökralaust við af öðru og ábyrgð á þjónustuþáttum milli aðila sé skýr. Nálgun ólíkra fagstétta og fjölbreytt úrræði eru nauðsynleg en til þess að kerfið vinni sem ein heild þarf gott upplýsingaflæði. Með skilvirkri og öruggri upplýsingagjöf aukast gæði þjónustunnar og á því er sérstaklega tekið í aðgerðaráætluninni. Í því samhengi er nýsköpun ásamt stafrænum lausnum mikilvæg.
Skýr framtíðarsýn
Gott að eldast er verkefni þjóðarinnar. Einstaklingurinn er þungamiðjan sem verkefnið og velferðarkerfið snýst um. Einstaklingurinn á að hafa aðgang að fjölbreyttri og samþættri þjónustu. Hvort sem það er heilbrigðisþjónusta, félagsþjónusta eða önnur stuðningsþjónusta. Heima eða í öðrum búsetuúrræðum. Við vitum hvert við viljum stefna og Gott að eldast er leiðarvísirinn.
Willum Þór Þórsson, heilbrigðisráðherra og oddviti Framsóknar í Suðvesturkjördæmi