Góðverkin gerast á Bókasafni Kópavogs

Kaðlín-konurnar okkar frábæru halda áfram að prjóna til góðs úr því gjafagarni sem barst Bókasafni Kópavogs í haust. Enn er talsvert eftir af vetri og er nokkuð víst að góðar íslenskar lopapeysur frá hópnum eru að fara að gera lífið betra fyrir marga. Peysur, húfur, vettlingar og sokkar er meðal þess sem kæru handavinnukonurnar okkar eru búnar að leggja mikla vinnu í að búa til og voru gefin þeim sem þurftu fyrir jólin.

Hannyrðaklúbburinn Kaðlín hittist vikulega á bókasafninu, miðvikudaga kl. 14 og bjóðum við alla velkomna að kíkja við í hópinn, og ná góðu spjalli á meðan hinar ýmsu gersemar verða til úr allskonar garni. Nánari upplýsingar má finna á heimasíðu safnsins og samfélagsmiðlum.

Nýjustu greinarnar

Tengdar greinar

Vefkökur og persónuvernd

Vefur kgp.is notast við vefkökur í þeim tilgangi að veita þér sem bestu upplifun þegar þú heimsækir okkur á vefnum.  Vefkökurnar eru vistaðar í vafranum þínum og þjóna m.a. þeim tilgangi að kerfið "þekkir þig" þegar þú kemur aftur á vefinn okkar.  Þannig þarftu t.d. ekki að fara aftur í gegnum samþykktarferlið fyrir vefkökur, ert ekki spurð(ur) aftur og aftur hvort þú vilt skrá þig á póstlista eða um aðra virkni sem þú hefur annað hvort samþykkt eða hafnað í fyrri heimsóknum o.fl. o.fl.

Þú getur stillt vefkökurnar hér til vinstri.

Með kærri kveðju,
Starfsfólk KGP.is vefsins