Gnitaheiði er gata ársins í Kópavogi

Gnitaheiði er gata ársins 2024 í Kópavogi. Bæjarstjórn Kópavogs velur götu ársins og er Gnitaheiði 30. gatan í Kópavogi til þess hljóta nafnbótina. Íbúar í götunni komu saman af tilefninu og Orri Hlöðversson, formaður bæjarráðs í Kópavogi ávarpaði íbúa og afhjúpaði viðurkenningarskilti sem sett hefur verið upp í götunni. Þá var gróðursettur skrautreynir en venjan er sú að gróðursett er tré í götu ársins.
 
Gnitaheiði sem liggur niður af Digranesheiði er í Digraneshlíð, hverfi sem var skipulagt á níunda áratug síðustu aldar. Hverfið hefur þá sérstöðu að vera í miklu brattlendi og er afar víðsýnt til suðurs. Áður en uppbygging þess hófst var nokkuð um stórgrýti á landinu en holtagróður ríkjandi með föngulegum trjám og runnum af ýmsum tegundum. Eitt af markmiðum skipulags Digraneshlíðar var að varðveita gróður og fella byggðina að umhverfinu sem gerir götumynd Gnitaheiði mjög skemmtilega.

Gnitaheiði samanstendur af fjórum sérbýlum og raðhúsi sem voru byggð rétt fyrir aldamót en Gnitaheiði 4 til 6 bættist við árið 2016. Í botni Gnitaheiðar er efsti hluta Himnastigans sem liggur niður í Kópavogsdal. Ef farið er út af stiganum til vesturs neðan við Gnitaheiði 8-14 má finna falda gönguleið með margbreytilegum gróðri sem er sannkallaður ævintýrastaður.
 
Gnitaheiði einkennist af snyrtilegum og vel hirtum lóðum. Það er greinilegt að íbúar götunnar huga vel að umhverfi sínu og eru öðrum íbúum Kópavogs hvatning og fyrirmynd.

Íbúar í Gnitaheiði ásamt Orra Hlöðverssyni, formanni bæjarráðs, Bergi Þorra Benjamínssonar, formanni umhverfis- og skipulagsnefndar, Guðjóni Inga Guðmundssyni og Indriða Stefánssyni nefndarmönnum.

Nýjustu greinarnar

Tengdar greinar

Vefkökur og persónuvernd

Vefur kgp.is notast við vefkökur í þeim tilgangi að veita þér sem bestu upplifun þegar þú heimsækir okkur á vefnum.  Vefkökurnar eru vistaðar í vafranum þínum og þjóna m.a. þeim tilgangi að kerfið "þekkir þig" þegar þú kemur aftur á vefinn okkar.  Þannig þarftu t.d. ekki að fara aftur í gegnum samþykktarferlið fyrir vefkökur, ert ekki spurð(ur) aftur og aftur hvort þú vilt skrá þig á póstlista eða um aðra virkni sem þú hefur annað hvort samþykkt eða hafnað í fyrri heimsóknum o.fl. o.fl.

Þú getur stillt vefkökurnar hér til vinstri.

Með kærri kveðju,
Starfsfólk KGP.is vefsins