Glæsilegur árangur Gerplufólks á EM í áhaldafimleikum!

Evrópumótið í áhaldafimleikum stóð yfir í Munchen í Þýskalandi. Kvennalandslið Íslands keppti 11. ágúst sl. og áttu þær glæsilegt mót. Fimm stúlkur mynduðu landsliðið og átti Gerpla þrjár glæsilegar fyrirmyndir í þeim hópi, þær Agnesi Suto, Hildi Maju Guðmundsdóttur og Thelmu Aðalsteinsdóttur.

Karlaliðið keppti 18. ágúst sl., en þeir voru í fyrsta keppnisholli á mótinu af þremur. Fimm drengir mynduðu landslið Íslands og átti Gerpla fjóra snillinga í þeim hópi, þá Valgarð Reinhardsson, Jónas Inga Þórisson, Atla Snæ Valgeirsson og Martin Bjarna Guðmundsson.

Umgjörð mótsins var stórkostleg og fór mótið fram í Ólympíuhöllinni í Munchen þar sem sumarólympíuleikarnir árið 1972 fóru fram. Gerplustúlkur náðu glæsilegum árangri á mótinu, Thelma varð stigahæst þeirra með 47.432 stig og 42. sæti af 85 keppendum, Hildur Maja fór í gegnum mótið án falls og fékk 44.398 stig og 63. sæti. Agnes átti því miður ekki sinn besta dag en þessi frábæra fyrirmynd nýtti reynsluna frá glæstum ferli og getur svo sannarlega borið höfuðið hátt.

Karlalandslið Íslands. F.v. Atli Snær Valgeirsson, Valgarð Reinhardsson, Jón Sigurður Gunnarsson, Martin Bjarni Guðmundsson og Jónas Ingi Valgeirsson

Valgarð varð stigahæstur af íslensku strákunum með 77.098 stig sem skilaði honum 42 sæti af 74 keppendum, Jónas Ingi varð annar af íslensku strákunum í fjölþraut með 72.865 stig og Martin átti frábær fimm áhöld af sex, sem skilaði honum heildareinkunn 69,098 stigum. Atli keppti á fjórum áhöldum og skiptu hann og Jón Sigurður með sér áhöldum þar sem einungis 4 keppendur mega fara upp á áhaldið frá hverju liði. Atli Snær stóð sig mjög vel í frumraun sinni á Evrópumóti í áhaldafimleikum.

Fjögur náðu lágmörkum og fara til Liverpool

Thelma, Hildur Maja, Jónas og Valgarð náðu lágmörkum inn á heimsmeistaramótið í Liverpool sem fram fer dagana 29. október til 6. nóvember. Verður gaman að fylgjast með þeirra undirbúningi fyrir mótið á næstu vikum.

Mynd:

Forsíðumynd: F.v. Thelma Aðalsteinsdóttir, Agnes Suto, Margrét Lea Kristinsdóttir, Guðrún Edda Min Harðardóttir og Hildur Maja Guðmundsdóttir

Nýjustu greinarnar

Tengdar greinar

Vefkökur og persónuvernd

Vefur kgp.is notast við vefkökur í þeim tilgangi að veita þér sem bestu upplifun þegar þú heimsækir okkur á vefnum.  Vefkökurnar eru vistaðar í vafranum þínum og þjóna m.a. þeim tilgangi að kerfið "þekkir þig" þegar þú kemur aftur á vefinn okkar.  Þannig þarftu t.d. ekki að fara aftur í gegnum samþykktarferlið fyrir vefkökur, ert ekki spurð(ur) aftur og aftur hvort þú vilt skrá þig á póstlista eða um aðra virkni sem þú hefur annað hvort samþykkt eða hafnað í fyrri heimsóknum o.fl. o.fl.

Þú getur stillt vefkökurnar hér til vinstri.

Með kærri kveðju,
Starfsfólk KGP.is vefsins