Getnaðarvarnir eftir fæðingu 

Fræðsla og spjall um getnaðarvarnir eftir fæðingu verður á Bókasafni Kópavogs á morgun, fimmtudaginn 30. jan. kl. 10-11. Brjóstagjöf, hormónagetnaðarvarnir og getnaðarvarnir án hormóna. Langtíma- og skammtíma getnaðarvarnir. Kostir og gallar.

Steinunn Zophoníasdóttir er ljósmóðir og starfar bæði við fæðingar á LSH og við kvenheilsu hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, þar sinnir hún meðal annars getnaðarvarnarráðgjöf og uppsetningu á getnaðarvörnum.

Foreldramorgnar eru frábært tækifæri fyrir foreldra og ung börn þeirra til að hittast og eiga rólega stund saman á safninu.

Ókeypis aðgangur og öll velkomin.

Nýjustu greinarnar

Tengdar greinar