Gerðarsafn og Náttúrufræðistofa Kópavogs hlutu nýverið Öndvegisstyrk frá Safnasjóði upp á 10 milljónir króna. Styrkurinn er til þriggja ára fyrir verkefnið Náttúra í gegnum linsu myndlistar sem er þriggja ára fræðsluverkefni fyrir börn á leik- og grunnskólaaldri þar sem tengsl myndlistar og náttúru eru könnuð. Í öndvegisverkefninu tvinnast saman sérfræðiþekking innan myndlistar í Gerðarsafni og í náttúruvísindum í Náttúrufræðistofu Kópavogs og byggir á farsælu þverfaglegu samstarfi safnanna tveggja í fræðslu undanfarin ár. Verkefnið spannar fimm skólaannir og á hverri önn er ákveðið þema og sértækt rannsóknarefni tekið fyrir með hverjum aldurshópi út frá aðalnámskrá grunnskólanna og námskrá leikskóla. Náttúra í gegnum linsu myndlistar er tilraunaverkefni í þverfaglegri safnafræðslu fyrir fyrstu skólastigin þar sem tekið er stórt skref í átt að auka þátttöku safnanna í menntun barna. Börnin fá tækifæri til að uppgötva og rannsaka á eigin forsendum þar sem þau eru bæði vísindamennirnir og listamennirnir.
Safnasjóður er í umsjón Safnaráðs í umboði menningar- og viðskiptaráðuneytisins og Lilja Alfreðsdóttir ráðherra afhenti Brynju Sveinsdóttur forstöðumanni Gerðarsafns og Finni Ingimarssyni forstöðumanni Náttúrufræðistofu Kópavogs viðurkenningarskjal vegna styrksins.
Vefur kgp.is notast við vefkökur í þeim tilgangi að veita þér sem bestu upplifun þegar þú heimsækir okkur á vefnum. Vefkökurnar eru vistaðar í vafranum þínum og þjóna m.a. þeim tilgangi að kerfið "þekkir þig" þegar þú kemur aftur á vefinn okkar. Þannig þarftu t.d. ekki að fara aftur í gegnum samþykktarferlið fyrir vefkökur, ert ekki spurð(ur) aftur og aftur hvort þú vilt skrá þig á póstlista eða um aðra virkni sem þú hefur annað hvort samþykkt eða hafnað í fyrri heimsóknum o.fl. o.fl.
Þú getur stillt vefkökurnar hér til vinstri.
Með kærri kveðju,
Starfsfólk KGP.is vefsins