Gatnaframkvæmdir hafnar í Vatnsendahvarfi

Framkvæmdir við jarðvinnu og lagnir í Vatnsendahvarfi eru hafnar. Til að halda upp á áfangann tók bæjarstjóri Kópavogs Ásdís Kristjánsdóttir fyrstu skóflustungu að götunni Hæðarhvarfi. Árni Geir Eyþórsson, framkvæmdastjóri Jarðvals sem sér um jarðvegsvinnu í Vatnsendahvarfi, var Ásdísi innan handar við skóflustunguna  sem tekið var með beltisgröfu. 
 
„Það er virkilega gaman að sjá að hér eru framkvæmdir komnar á fulla ferð, það ríkir mikil eftirvænting í Kópavogi eftir að fá nýtt hverfi í bæinn. Vatnsendahvarfið er vel staðsett á afar fallegum útsýnisstað,“ segir Ásdís Kristjánsdóttir bæjarstjóri Kópavogs.

Á myndinni eru frá vinstri Bjarki Már Gunnarsson Kópavogsbæ, Atli Már Þorgrímsson og Lea Steinþórsdóttir Ljósleiðaranum, Sigurður Bjarki Rúnarsson eftirlitsmaður verksins, Ásdís Kristjánsdóttir bæjarstjóri og Árni Geir Eyþórsson, Jarðvali. 

Um er að ræða 1,1 milljarða framkvæmd sem felur í sér lagnir og jarðvinnu undir gatnagerð í Vatnsendahvarfi, nýju hverfi á Vatnsendahæð í Kópavogi. Uppbygging húsa og mannvirkja getur hafist þegar gatna- og lagnagerð er lokið en verkið er unnið í áföngum í samræmi við lóðaúthlutanir Kópavogsbæjar. Fyrsta úthlutun var í júní og var þá um að ræða fjölbýlishúsalóðir. Í næstu úthlutun verður einnig úthlutað lóðum fyrir raðhús, parhús og einbýli. Að jarðvinnu lokinni verður lokafrágangur gatna, svosem malbikun, gangstéttir og opin svæði boðin út.
 
Auk fulltrúa Kópavogbæjar voru viðstaddir skóflustunguna fulltrúar frá Ljósleiðaranum en Ljósleiðarinn, Veitur og Míla eru verkkaupar að 15% verksins en hlutur Kópavogsbæjar eru 85%.

Forsíðumynd: Ásdís tekur fyrstu skóflustungana að götunni Hæðarhvarfi, en hún naut aðstoðar Árna Geirs Eyþórssonar, framkvæmdastjóra Jarðvals


 

Nýjustu greinarnar

Tengdar greinar

Vefkökur og persónuvernd

Vefur kgp.is notast við vefkökur í þeim tilgangi að veita þér sem bestu upplifun þegar þú heimsækir okkur á vefnum.  Vefkökurnar eru vistaðar í vafranum þínum og þjóna m.a. þeim tilgangi að kerfið "þekkir þig" þegar þú kemur aftur á vefinn okkar.  Þannig þarftu t.d. ekki að fara aftur í gegnum samþykktarferlið fyrir vefkökur, ert ekki spurð(ur) aftur og aftur hvort þú vilt skrá þig á póstlista eða um aðra virkni sem þú hefur annað hvort samþykkt eða hafnað í fyrri heimsóknum o.fl. o.fl.

Þú getur stillt vefkökurnar hér til vinstri.

Með kærri kveðju,
Starfsfólk KGP.is vefsins