Á fundi bæjarráðs Kópavogs þann 6. mars síðastliðinn var tekið fyrir bréf frá Söndru Sigurðardóttur, framkvæmdastjóra HK, þar sem hún lýsir þakklæti sínu fyrir þá fjárfestingu sem hefur verið ákveðin í uppbyggingu íþróttamannvirkja við félagssvæði HK. Hún gagnrýnir hins vegar skort á samráði við félagið í aðdraganda ákvörðunarinnar.
Í bréfi Söndru segir meðal annars: „Þrátt fyrir þessa jákvæðu þróun getum við ekki horft framhjá því að skortur á samráði við félagið í aðdraganda þessarar ákvörðunar og veldur það okkur verulegum vonbrigðum. Við höfum ítrekað óskað eftir upplýsingum og fundum til að fá að taka þátt í umræðu um útfærslu mannvirkisins, en því miður hefur sú viðleitni okkar ekki fengið viðunandi viðbrögð. Við teljum það afar mikilvægt að við fáum að koma að borðinu og tekið verði tillit til okkar sjónarmiða.“

Sandra bendir á að skynsamlegri og hagkvæmari útfærsla hefði verið möguleg, sem betur myndi uppfylla þarfir félagsins. Þá telur hún mikilvægt að opið samtal eigi sér stað áður en málið verður tekið til afgreiðslu í bæjarráði.
Tveir í vinnuteyminu skipaðir af fulltrúum HK
Meirihluti bæjarráðs leggur áherslu á að frumhönnun mannvirkisins hafi verið kynnt og tekið mið af þarfagreiningu bæði bæjarins og HK. Í bókun þeirra segir: „Frumhönnun hefur verið kynnt í bæjarráði sem tekur mið af þarfagreiningu bæjarins og HK. Sviðsmynd sem horft er til var meðal annars unnin af vinnuteymi skipuðu tveimur fulltrúum HK. Næsta skref er að funda með HK um áframhald verkefnisins. Mikilvægt er að ramminn liggi nú fyrir og hægt sé að stíga næstu skref. Samráð verður áfram haft við hagaðila á öllum stigum.“
Meirihlutinn bendir einnig á að viljayfirlýsing um stúkumannvirkið hafi verið undirrituð árið 2013 og að tími sé kominn til að fylgja henni eftir. „HK átti tvo fulltrúa í vinnuteymi þar sem unnin var ítarleg þarfagreining vegna stúkumannvirkisins og haft verður áfram samráð við HK við hönnun stúkunnar. Með nýrri stúku og keppnisvelli lýkur uppbyggingu á heildstæðu íþróttasvæði við Kórinn til hagsbóta fyrir Kópavogsbúa.“
Ekki tímabært að fara í svona stóra framkvæmd
Minnihluti bæjarráðs tekur undir gagnrýni Söndru og telur ekki tímabært að fara af stað í svo stóra framkvæmd. Þeir benda á að ekki hafi verið haft nægilegt samráð við HK og að forsendur hafi breyst frá þarfagreiningu 2023 vegna tilkomu Kóraskóla.
Í bókun minnihlutans segir: „Það er engan veginn tímabært að leggja af stað í jafn umfangsmikla framkvæmd og hér er lagt til nú í haust, sér í lagi þar sem ekki hefur verið samráð við HK eins og fram kemur í bréfi framkvæmdastjóra HK. Framkvæmd sem kostar milljarða króna þarf að undirbúa mun betur bæði hvað varðar þarfir Kópavogsbæjar og íþróttafélagsins. Forsendubreyting hefur orðið eftir þarfagreininguna 2023 með tilkomu Kóraskóla.“
Málið hefur nú verið vísað til bæjarstjóra til frekari afgreiðslu. Óvíst er hvernig framhaldið verður, en ljóst er að málið hefur vakið töluverð viðbrögð bæði hjá meirihluta og minnihluta bæjarráðs sem og innan HK.
Forsíðumynd: Fyrir utan Kórinn þar sem ný stúka og keppnisvöllur á að rísa