Foreldramorgunn með Sólrúnu Ósk Lárusdóttur

Sólrún Ósk Lárusdóttir, sálfræðingur kemur á foreldramorgun á aðalsafni Bókasafns Kópavogs þann 3. mars n. k. og fjallar um líkamsímynd yngri barna en einnig um líkamsímynd mæðra eftir fæðingu. Fjallað verður um áhrifaþætti, hvað við þurfum að vita og hvað við getum gert til að bæta eigin líkamsímynd og barnanna okkar.

Foreldramorgnar eru frábært tækifæri fyrir foreldra og ung börn þeirra til að hittast og eiga saman góða stund á safninu. Fylgist með í Facebook-hópnum Foreldramorgnar | Bókasafn Kópavogs. Aðgangur er ókeypis og öll velkomin.

Nýjustu greinarnar

Tengdar greinar