Flugeldarasýning og áramótabrenna í Gulaþingi

Hjálparsveit skáta stendur fyrir flugeldasýningu á gamlárskvöld klukkan níu. Þá verður áramótabrenna í Gulaþingi kl. 20.30.

Flugeldasýningin er staðsett austan Reykjanesbrautar, á Glaðheimasvæðinu. Hún er er sýnileg víða að, til að mynda úr Smárahverfi, Lindum, Sölum og sunnanverðu Digranesi. Þá er fjöldi bílastæði í næsta nágrenni, ef fólk vill njóta í bíl.

Áramótabrenna verður haldin í Gulaþingi. Brennan, sem er haldin og skipulögð af íbúum, hefur verið haldin um árabil.

Eins og áður hefur komið fram í Kópavogspóstinum og hér á vefsíðunni þá verður engin brenna í Kópavogsdal vegna umhverfissjónarmiða.

Mynd: Kópavogsbær

Nýjustu greinarnar

Tengdar greinar