Fjölbreytt námskeið fyrir starfsfólk grunnskóla

Námskeið fyrir almennt starfsfólk í grunnskólum í Kópavogi voru haldin í byrjun ágúst í Salaskóla. Grunnskólastarfið hefst nú á ný eftir sumarið og var þetta hressileg byrjun á starfinu. Námskeiðin voru valkvæð og vel mætt var á þau.

Fjölbreytt námskeið voru í boði fyrir starfsfólk grunnskólanna og boðið var upp á enska og pólska túlka þegar þess þurfti. Námskeiðin voru bæði fróðleg og skemmtileg en leiðbeinendur á námskeiðunum voru eftirfarandi:

Samskipti við börn: Aðalheiður Diego Hjálmarsdóttir, Silja Dís Guðjónsdóttir og Þórhildur Helga Þorleifsdóttir, starfsmenn grunnskóladeildar.
Streitustjórnun: Ásgerður Guðmundsdóttir.
Starfsánægja, samskipti og samstarf: Aldís Arna Tryggvadóttir.
Skyndihjálp: Ólafur Ingi Grettisson.

Þetta er í þriðja skiptið sem námskeið eru haldin fyrir almennt starfsfólk í grunnskólum. Almennt starfsfólk grunnskóla eru húsverðir, ritarar, skólaliðar, matráðar, stuðningsfulltrúar, forstöðumenn frístunda og frístundaleiðbeinendur. Í næstu viku verða haldin námskeið fyrir grunnskólakennara en þau hafa verið haldin síðan 2017. 

Nýjustu greinarnar

Tengdar greinar

Vefkökur og persónuvernd

Vefur kgp.is notast við vefkökur í þeim tilgangi að veita þér sem bestu upplifun þegar þú heimsækir okkur á vefnum.  Vefkökurnar eru vistaðar í vafranum þínum og þjóna m.a. þeim tilgangi að kerfið "þekkir þig" þegar þú kemur aftur á vefinn okkar.  Þannig þarftu t.d. ekki að fara aftur í gegnum samþykktarferlið fyrir vefkökur, ert ekki spurð(ur) aftur og aftur hvort þú vilt skrá þig á póstlista eða um aðra virkni sem þú hefur annað hvort samþykkt eða hafnað í fyrri heimsóknum o.fl. o.fl.

Þú getur stillt vefkökurnar hér til vinstri.

Með kærri kveðju,
Starfsfólk KGP.is vefsins