Eva og amma landvörður

Hólmfríður Hafliðadóttir les úr glænýrri barnabók sinni Eva og amma landvörður í sögustund á Bókasafni Kópavogs fimmtudaginn 13. júlí kl. 10.00.

Aðgangur er ókeypis og öll hjartanlega velkomin. 

Eva er alveg að verða fimm ára og er í heimsókn hjá ömmu sinni upp á hálendi. Amma Evu er nefnilega landvörður, og Eva gistir hjá henni í litlum skála. Það er skrýtið að vera langt frá mömmu og pabba, og á stað þar sem eru engin börn, nema þau örfáu sem fylgja einhverjum gönguhópnum sem á leið fram hjá skálanum hennar ömmu. En Eva er hugrökk og skapandi og hún og Bangsi (bangsinn hennar) finna upp á ýmislegu til þess að gera, enda ekki hægt að leiðast þegar maður á svona flotta ömmu sem veit allt og kann allt um landið og náttúruna! 

Sagan af Evu og ömmu landverði verður gefin út sem hljóðbók á Spotify.

Viðburðurinn er hluti af viðburðadagskrá Skapandi sumarstarfa í Kópavogi.

Nýjustu greinarnar

Tengdar greinar

Vefkökur og persónuvernd

Vefur kgp.is notast við vefkökur í þeim tilgangi að veita þér sem bestu upplifun þegar þú heimsækir okkur á vefnum.  Vefkökurnar eru vistaðar í vafranum þínum og þjóna m.a. þeim tilgangi að kerfið "þekkir þig" þegar þú kemur aftur á vefinn okkar.  Þannig þarftu t.d. ekki að fara aftur í gegnum samþykktarferlið fyrir vefkökur, ert ekki spurð(ur) aftur og aftur hvort þú vilt skrá þig á póstlista eða um aðra virkni sem þú hefur annað hvort samþykkt eða hafnað í fyrri heimsóknum o.fl. o.fl.

Þú getur stillt vefkökurnar hér til vinstri.

Með kærri kveðju,
Starfsfólk KGP.is vefsins