Engin brenna verður í Kópavogsdal á gamlárskvöld. Brennan var síðast haldin árið 2019 en féll niður 2020 og 2021 vegna samkomutakmarkana. Brennan hefur verið samstarfsverkefni Breiðabliks og Kópavogsbæjar. Kópavogsbær hefur tekið þátt í undirbúningi, sótt efni í brennuna, hlaðið hana og vaktað fram að gamlársdegi en Breiðablik séð um brennuna og viðburðarhald um kvöldið.
Kópavogsdalur er ekki lengur talinn heppilegur staður fyrir áramótabrennu. Annars vegar vegna umhverfissjónarmiða, þar sem mikil mengun hefur mælst í Kópavogsdalnum á gamlárskvöld og hins vegar vegna öryggissjónarmiða og nálægðar við mannvirki í grennd við brennustæðið.
Ásdís Kristjánsdóttir, bæjarstjóri í Kópavogi
Ásgeir Baldursson, formaður Breiðabliks
Mynd: Kópavogsbær