Búið að dreifa um 8000 tunnum í Kópavogi

Dreifingu á nýjum tunnum er lokið í Kópavogi og var alls var um 8.000 tunnum dreift í bænum í fjölbýli og sérbýli.

Hafist var handa 22.maí og lauk dreifingu 7.júlí eins áætlanir gerðu ráð fyrir.

Vel gekk að dreifa tunnum, starfsfólk Þjónustumiðstöðvar Kópavogs sá um setja tunnurnar saman og Íslenska gámafélagið dreifði tunnunum.

Farið er að hirða sorp samkvæmt nýju kerfi, blandaður úrgangur og lífrænn er tæmdur á 14 daga fresti og pappír og plast á 14 daga fresti.

Í Þjónustugátt Kópavogsbæjar er hægt að sækja um breytingar á tunnusamsetningu í fjölbýlum ef reynslan sýnir að breyta þarf sameiningu á úrgangstunnum og körum í sorpgeymslum.

Sambærilegt umsóknarform verður sett inn fyrir sérbýli um mánaðamótin júlí/ágúst fyrir þau sem vilja breyta plast- og pappatunnu í tvískipta tunnu fyrir plast og pappír.

Nýjustu greinarnar

Tengdar greinar

Vefkökur og persónuvernd

Vefur kgp.is notast við vefkökur í þeim tilgangi að veita þér sem bestu upplifun þegar þú heimsækir okkur á vefnum.  Vefkökurnar eru vistaðar í vafranum þínum og þjóna m.a. þeim tilgangi að kerfið "þekkir þig" þegar þú kemur aftur á vefinn okkar.  Þannig þarftu t.d. ekki að fara aftur í gegnum samþykktarferlið fyrir vefkökur, ert ekki spurð(ur) aftur og aftur hvort þú vilt skrá þig á póstlista eða um aðra virkni sem þú hefur annað hvort samþykkt eða hafnað í fyrri heimsóknum o.fl. o.fl.

Þú getur stillt vefkökurnar hér til vinstri.

Með kærri kveðju,
Starfsfólk KGP.is vefsins