Bryndís ræðir um verk sín

Listamennirnir Bryndís Snæbjörnsdóttir og Mark Wilson fagna nú 20 ára samstarfi með yfirlitssýningu í Gerðarsafni. Bryndís ræðir um verk sín í hádeginu í dag, miðvikudaginn 20. október kl. 12.15.

Bryndís og Mark staðsetja list sína sem rannsóknar- og samfélagslist og nota gjarnan samspil manna og dýra í verkefnum sínum til að skoða málefni er varða sögu, menningu og umhverfið. Með listrannsóknum sínum kveikja þau hugleiðingar og samtal um hvernig heimurinn er að breytast og hlutverk okkar mannfólksins í þeim breytingum. Listamennirnir nálgast listsköpun sína með vistfræðilegri og heildrænni sýn. Verk þeirra eru þverfagleg í eðli sínu og taka gjarnan form innsetninga með skúlptúrum, fundnum hlutum, vídeóverkum, hljóði, teikningum, ljósmyndum og textum.

Sýningarstjóri er Becky Forsythe. Aðgangur er ókeypis og öll eru velkomin.

Nýjustu greinarnar

Tengdar greinar

Vefkökur og persónuvernd

Vefur kgp.is notast við vefkökur í þeim tilgangi að veita þér sem bestu upplifun þegar þú heimsækir okkur á vefnum.  Vefkökurnar eru vistaðar í vafranum þínum og þjóna m.a. þeim tilgangi að kerfið "þekkir þig" þegar þú kemur aftur á vefinn okkar.  Þannig þarftu t.d. ekki að fara aftur í gegnum samþykktarferlið fyrir vefkökur, ert ekki spurð(ur) aftur og aftur hvort þú vilt skrá þig á póstlista eða um aðra virkni sem þú hefur annað hvort samþykkt eða hafnað í fyrri heimsóknum o.fl. o.fl.

Þú getur stillt vefkökurnar hér til vinstri.

Með kærri kveðju,
Starfsfólk KGP.is vefsins