Ásdís Kristjánsdóttir tekur fyrstu skóflustunguna að nýrri Fossvogsbrú í hádeginu á morgun

Ásdís Kristjánsdóttir, bæjarstjóri í Kópavogi mun taka fyrstu skóflustunguna að byggingu Fossvogsbrúar í hádeginu á morgun, en brúin er hluti af Samgöngusáttmálanum og fyrsta stóra framkvæmdin í borgarlínuverkefninu. Fossvogsbrúin tengir saman vesturhluta Kópavogs og Reykjavík með afgerandi hætti. Áætluð verklok eru 1. nóvember 2026 fyrir þennan hluta verksins en gert sé ráð fyrir að Fossvogsbrú verði tilbúin um mitt ár 2028.

Ásamt Ásdísi mun nýr samgönguráðherra, Eyjólfur Ármannsson, taka fyrstu skóflustunguna klukkan 12:30 á morgun, ásamt borgarstjóra Reykjavíkur, forstjóra Vegagerðarinnar og framkvæmdastjóra Betri samgangna.

Í tilkynningu frá Betri samgöngum segir að framkvæmdir við landfyllingar og sjóvarnir tengdum byggingu Fossvogsbrúar hefjist á Kársnesi í Kópavogi á morgun, en verksamningur milli Vegagerðarinnar og verkakafyrirtækisins Gröfu og grjóts varundirritaður í síðustu viku í kjölfar útboðs í nóvember 2024.

Ásamt Ásdísi mun nýr samgönguráðherra, Eyjólfur Ármannsson, taka fyrstu skóflustunguna klukkan 12:30 á morgun, ásamt borgarstjóra Reykjavíkur, forstjóra Vegagerðarinnar og framkvæmdastjóra Betri samgangna.

Forsíðumynd: Brúin er fyrsta stóra framkvæmdin í Borgarlínuverkefninu

Nýjustu greinarnar

Tengdar greinar