Alma er mætt!

Nýja bókasafnskerfið Alma er nú loks komið í gagnið á bókasöfnum landsins og er Bókasafn Kópavogs engin undantekning þar á. Starfsmen safnsins eru búnir að vinna ötulum höndum að því að tileinka sér kerfið og eru nýjar bækur að hrúgast inn. Gott er að minna lánþega á að það þarf að setja pin-númerið á lánþegakortunum aftur inn í kerfið þegar safnkostur er lánaður í fyrsta sinn eftir breytinguna en breytingin á ekki að hafa önnur áhrif á lánþega. Það er hægt að gera í afgreiðslunni á safninu. Viljum við þakka öllum fyrir þolinmæðina og velvildina í gegnum þessi skipti og hlökkum mikið til að afgreiða lánþega í gegnum Alma.

Nýjustu greinarnar

Tengdar greinar