Alberto sæmdur gullmerki FRÍ

Alberto Borges Moreno þjálfari frjálsíþróttadeildar Breiðabliks var á dögunum sæmdur gullmerki Frjálsíþróttasambands Íslands.

Er þetta enn ein rósin í hnappagat Albertos á stuttum tíma en hann hlaut t.a.m. þjálfarabikar Breiðabliks á íþróttahátíð félagsins sem haldin var í janúar.

Þess ber að geta að Alberto fagnar 10 ára starfsafmæli hjá Breiðabliki í ár.

Nýjustu greinarnar

Tengdar greinar