Akstur á stórhátíðardögum í Kópavogi um jól og áramót 2023/2024 fyrir fólk með fötlun og eldra fólk verður sem hér segir:
- Aðfangadagur jóla 24. desember: 11:00-14:00
- Jóladagur 25. desember: 11:00-14:00
- Annar í jólum 26. desember: 11:00- 24:00
- Gamlársdagur 31. desember: 11:00-14:00
- Nýársdagur 1. janúar: 11:00-14:00
- Enginn akstur verður eftir 14:00 á aðfangadag jóla 24. desember, jóladag 25. desember, gamlársdag 31. desember og nýársdag 1. janúar.
Hjólastólabílar – undantekning
- Hjólastólanotendur geta pantað ferðir sem fara á eftir klukkan 14:00 þessa stórhátíðardaga með ákveðnum fyrirvara.
Nauðsynlegt er fyrir hjólastólanotendur að panta ferðir um hátíðina hjá akstursþjónustunni Teit fyrir 10. desember 2023 – eftir þann tíma er það ekki hægt.