Afkoman batnaði um 156 milljónir á milla umræðna í bæjarstjórn

Fjárhagsáætlun fyrir árið 2025 var samþykkt í bæjarstjórn Kópavogs að lokinni seinni umræðu. Einnig var samþykkt þriggja ára áætlun fyrir tímabilið 2026-2028.

Óverulegar breytingar urðu á fjárhagsáætluninni milli umræðna en einstaka gjaldliðir ýmist hækkuðu eða lækkuðu. Heildar áhrif breytinga á rekstur milli umræðna urðu til þess að heildar tekjur hækka um 243 milljónir króna og heildargjöld um 87 milljónir króna. Nettó batnar því afkoman um 156 milljónir. Rekstrarniðurstaða samstæðunnar er því 315 milljónir samkvæmt áætluninni.

Traustur rekstur og lágt skuldahlutfall

,,Rekstur bæjarins er traustur og skuldahlutföll lág, afgangur er á rekstri en ekki er gert ráð fyrir úthlutun lóða í áætlun bæjarins. Áfram lækka fasteignaskattar á bæjarbúa sem kemur til móts við hækkandi fasteignaverð sem ella hefðu skilað bæjarsjóði umtalsverðar tekjur, en situr nú eftir hjá Kópavogsbúum. Unnið verður að því markmiði að nýta betur fjármagn bæjarins með hagræðingu í rekstri en staðið vörð um góða þjónustu við íbúa,” segir Ásdís Kristjánsdóttir bæjarstjóri.

Nýjustu greinarnar

Tengdar greinar

Vefkökur og persónuvernd

Vefur kgp.is notast við vefkökur í þeim tilgangi að veita þér sem bestu upplifun þegar þú heimsækir okkur á vefnum.  Vefkökurnar eru vistaðar í vafranum þínum og þjóna m.a. þeim tilgangi að kerfið "þekkir þig" þegar þú kemur aftur á vefinn okkar.  Þannig þarftu t.d. ekki að fara aftur í gegnum samþykktarferlið fyrir vefkökur, ert ekki spurð(ur) aftur og aftur hvort þú vilt skrá þig á póstlista eða um aðra virkni sem þú hefur annað hvort samþykkt eða hafnað í fyrri heimsóknum o.fl. o.fl.

Þú getur stillt vefkökurnar hér til vinstri.

Með kærri kveðju,
Starfsfólk KGP.is vefsins