67 Kópavogsbúar á framboðslistum flokkanna fyrir Alþingskosningarnar

Alls eru 67 Kópavogsbúar á framboðslistum stjórnmálaflokkanna í Suðvestur-kjördæmi fyrir Alþingiskosningarnar á laugardaginn, en þeir voru 65 í kosningunum 2021 og 66 í kosningunum árið 2017.

Flestir Kópavogsbúar á lista Framsóknarflokksins

Einn af tíu oddvitum flokkanna í SV-kjördæmi er búsettur í öðru kjördæmi. Flestir Kópavogsbúar eru á lista Framsóknarflokksins eða 13 talsins, en þeir voru líka flestir fyrir kosningarnar 2021, þá 11 og þeir voru 12 fyrir kosningarnar árið 201. Aðeins eru tveir Kópavogsbúar á lista Lýðræðisflokksins og fjórir á lista Miðflokksins og Viðreisnar.

Eins og áður segir eru flestir Kópavogsbúar á framboðslista Framsóknarflokksins, en fæstir á lista Lýðræðisflokksins, en framboðslisti þeirra telur eingöngu 14 frambjóðendur á meðan aðrir flokkar eru með 28 frambjóðendur á sínum lista fyrir utan Sósíalistaflokkinn sem er með 27 frambjóðendur á sínum lista. Fjórir frambjóðendur eru á lista Miðflokksins og Viðreisnar með lögheimili í Kópavogi, fimm í Sjálfstæðisflokknum, sjö á lista Fólks Fólksins, sex á lista Sósíalistaflokksins og þeir flokkar sem eru með næst flesta Kópavogsbúa á sínum fram-boðslistum á eftir Framsóknarflokknum eru Píratar, Samfylkingin og Vinstri grænir, en hver flokkur eru með níu Kópavogsbúa á sínum lista.

Níu oddvitar af tíu búsettir í Kraganum

Níu af tíu oddvitum flokkanna í Sv-kjördæmi eru með lögheimili í Kraganum, þeir voru 8 fyrir kosningarnar 2021, en aðeins höfðu 6 af 10 oddvitum flokkanna lögheimili í Kraganum í kosningunum 2017. Fyrir kosningarnar á laugardaginn er það eingöngu Davíð Þór Jónsson, oddviti Sósíalistaflokksins sem er ekki með lögheimili í Kraganum heldur að Laugateigi í Reykjavík.

Þrír oddvitar búsettir í Kópavogi

Þrír af oddvitum flokkanna tíu fyrir kosningarnar á laugardaginn eru búsettir í Kópavogi, en þetta eru þau Guðmundur Ingi Kristinsson í Flokki fólksins, Willum Þór Þórsson Framsóknarflokki og Almar Möller í Samfylkingunni.

Þrír oddvitar eru búsettir í Garðabæ, en það eru Bjarni Benediktsson, Sjálfstæðisflokki, Arnar Þór Jónsson í Lýðræðisflokki og Bergþór Ólason Miðflokki. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir í Viðreisn er búsett í Hafnarfirði, Þórhildur Sunna Ævarsdóttir Pírati býr í Mosfellsbæ og Guðmundur Ingi Guðbrandsson er með lögheimili í Kjósahreppi.

Þrír oddvitar í Suðvesturkjördæmi búa í Kópavogi. F.v. Willum Þór, Alma og Gumundur.

7 á framboðslista Sósíalflokksins í Sv- kjördæmi ekki með lögheimili í kjördæminu

Allir frambjóðendur Framsóknarflokks- ins, Miðflokksins og Samfylkingarinnar eru með lögheimili í Sv-kjördæmi og allir nema einn hjá Lýðræðisflokknum og Sjálfstæðisflokknum. Tveir af lista Viðreisnar eru ekki með lögheimili í Kraganum og annar þeirra er Sigmar Guðmundsson, sem er með lögheimili í Reykjavík, en hann skipar annað sæti á lista flokksins í SV-kjördæmi. Þrír á lista Vinstri grænna búa ekki í kjördæminu og meðal þeirra er Eva Dögg Davíðsdóttir sem er í 2. sæti listans en hún er með lögheimili í Reykjavík. Þá eru fimm frambjóðendur á lista Flokks fólksins ekki með lögheimili í Sv- kjördæmi og þeir eru 6 á lista Pírata og 7 á lista Sósíalistaflokksins.

26 frambjóðendur í Sv-kjördæmi geta ekki kosið sinn eigin flokk í kjördæminu

Af 265 frambjóðendum sem skipa framboðslistana 10 í Suðvesturkjördæmi þá eru 26 þeirra með lögheimili í öðru kjördæmi. Það þýðir að þessir 26 frambjóðendur geta ekki kosið sinn eigin flokk í kjördæminu þar sem þeir eru á lista. Þeir geta því ekki gefið sjálfum sér atkvæði, né strikað sig út ef þeir hefðu áhuga á því.

Forsíðumynd – Íþróttahúsið Kórinn! Kjörstaðir í Kópavogi verða tveir. Íbúar vestan Reykjanesbrautar og í Lindahverfi kjósa í íþróttahúsinu Smáranum. Íbúar austan Reykjanes brautar, að frátöldum þeim sem búa í Lindahverfi, kjósa í íþróttahúsinu Kórnum

Nýjustu greinarnar

Tengdar greinar