54 nemendur brauðskráðust frá MK á haustönn

Brautskráning haustannar í Menntaskólanum í Kópavogi fór fram þann 20. desember sl., en þá útskrifuðust 54 nemendur frá skólanum, 23 á bóknámsbrautum og 31 úr verknámi.

Viðurkenningu úr viðurkenningarsjóði MK hlutu í þetta sinn Darri Hilmarsson sem var hæstur á lokaprófi í matreiðslu og Kacper Julian Ziolkowski sem var með hæsta meðaleinkunn á stúdentsprófi eða 8,33. Kacper er fæddur og uppalinn hér á landi en báðir foreldrar hans eru pólskir.

Juan M Aguirre De Los Santos var með hæsta meðaleinkunn í sérgreinum verknáms og fékk viðurkenningu frá Rótarýklúbbnum Borgum í Kópavogi

Kacper segir það alls ekki hafa verið stefnuna að enda hæst ur en að lykill inn sé að sinna náminu jafnt og þétt. „Það var alls ekki stefnan að dúxa. Aðal markmiðið var að klára en ég held að lykillinn hafi verið að ég mætti í alla tíma og gerði alltaf heimavinnuna,“ segir Kacper.

Sigrún Hulda Jónsdóttir forseti bæjarstjórnar Kópavogs afhenti þeim peningaverðlaun úr sjóðnum.
Juan M Aguirre De Los Santos var með hæsta meðaleinkunn í sérgreinum verknáms og fékk viðurkenningu frá Rótarýklúbbnum Borgum í Kópavogi.

Skólameistari, Guðríður Eldey Arnardóttir, fór yfir í sinni ræðu að það vantaði fleiri vinnandi hendur upp á dekk í ferðaþjónustunni og það væri tilfinnanlegur skortur á menntuðu fólki í matvælagreinum og framreiðslu. Þetta væru spennandi vel launuð störf með fjölbreytt atvinnutækifæri. Fagmennska í ferðaþjónustu væri lykilatriði, því erlendir gestir vilja ekki bara njóta fegurðar landsins, þau vilja ekki síður gott atlæti og faglegar móttökur. „Það er margt sem heillar við Ísland. Ósnortin náttúran, fossarnir, gljúfrin og auðvitað norðurljósin. Þrátt fyrir það vill fólk meira en bara líta fegurð landsins. Það vill góðan aðbúnað. Mat, gistingu og góða þjónustu. Okkur vantar fleiri vinnandi hendur upp á dekk. Það vantar tilfinnanlega fagfólk í öllum greinum ferðaþjónustunnar og þá ekki síst í veitingageiranum. Við verðum að tryggja fagmennsku í þessum greinum, tryggja það að þau sem taka á móti erlendum gestum séu fagfólk fram í fingurgóma. Það er ekki nóg að fá góðan mat á veitingastað ef þjónustan er slök. Það er engin glóra í því að ferðast um landið án traustrar og góðrar leiðsagnar.

Það er sótt að fagmennskunni með ófaglærðu fólki

Þessar mikilvægustu þjónustugreinar okkar Íslendinga hafa átt undir högg að sækja. Það er sótt að fagmennskunni með ófaglærðu fólki í leiðsögn og þjónustu. Góður matur er fín byrjun á góðu kvöldi, en það er þjónustan sem skapar umgjörðina, heildina og upplifunina. Það er nóg pláss hér í MK fyrir fleiri kokka, þjóna, bakara og svo ég tali nú ekki um kjötiðnaðarmenn. Þetta eru spennandi störf með endalausum tækifærum,“ sagðir Guðríður.

Forsíðumynd: Fengu viðurkenningu úr Viðurkenningasjóði! Frá vinstri: Sigríður Hulda Jónsdóttir, Darri Hilmarsson og Kacper Julian Ziolkowski.

Nýjustu greinarnar

Tengdar greinar