500 íbúðir og 1250 íbúar

Breytt deiliskipulag fyrir vesturhluta Glaðheimasvæðsins

Á síðasta fundi skipulagsráðs Kópavogs var lögð fram tillaga skipulagsdeildar Kópavogs að breyttu deiliskipulagi vesturhluta Glaðheima (reit 1 á mynd).

Í gildandi deiliskipulagi frá 2009 er gert ráð fyrir verslunar- og þjónustuhúsnæði á umræddu svæði samtals um 88.000 m2 ofanjarðar. Í breytingunni felst að áður fyrirhugaðri byggð um miðbik deiliskipulagssvæðisins er breytt úr atvinnuhúsnæði á 5-8 hæðum í 9 fjölbýlishús sem verða 3-12 hæða með um 468 íbúðum, leikskóla og opið svæði.

500 íbúðir og leikskóli

Á norðurhluta skipulagssvæðisins nánar tiltekið við húsagötu A nr. 2-3 er fallið frá verslunar- og þjónustuhúsnæði á þremur efstu hæðum hússins (húsa) og þess í stað komið fyrir 32 íbúðum. Heildarfjöldi íbúða á svæðinu öllu verður að hámarki 500 íbúðir. Í miðju skipulagssvæðinu er gert ráð fyrir leikskóla.

Suðvestan fyrirhugaðs Glaðheimavegar (á suðurhluta svæðisins) er gert ráð fyrir 7 lóðum fyrir verslunar- og þjónustuhúsnæði á 2 til 4 hæðum. Byggingarreitir, lóðir og lóðastærðir verslunar- þjónustu og athafnahúsa breytast sem og aðkoma og fjöldi bílastæða. Auk þess er gert ráð fyrir að lega tengibrautar um svæðið í framhaldi af Glaðheimavegi að Arnarnesvegi breytist.

Heildarstærð atvinnuhúsnæðis með kjallara og bílageymslum er áætluð um 50.000 m2 en um 36.000 m2 án bílageymslna og heildarstærð íbúðarhúsnæðis með kjallara og bílageymslum er áætluð um 89.000 m2. Stærð leikskóla er um 1.500 m2.

Heildarbyggingarmagn áætlað um 135.000 m2

Heildar byggingarmagn á deiliskipulagssvæðinu er áætlað um 135.000 m2 þar af um 106.000 m2 án bílageymslna. Svæðisnýtingarhlutfall deiliskipulagssvæðisins miðað við heildarbyggingarmagn er áætlað um 1.57 og 1.22 án bílakjallara neðanjarðar.

Gert er ráð fyrir einu stæði á hverja 75 m2 í verslun og þjónustu og einu stæði á hverja 100 m2 í atvinnuhúsnæði, geymslu – og kjallararými. Reikna skal með 1,2 stæðum á hverja íbúð með gestastæðum. Miðað við 2,5 íbúa á íbúð er áætlað að á svæðinu verði um 1.250 íbúar. 

Skipulagssvæðið fyrir vesturhluta Glaðheima er 8.6 ha að flatarmáli og afmarkast af veghelgunarsvæði Reykjanesbrautar til vesturs, til norðurs afmarkast það af fyrirhugaðri tengibraut sem liggur frá gatnamótum Bæjarlindar og Glaðheimavegar að Reykjanesbraut, Álalind 1-3 og til austurs af athafnasvæði við Askalind og Akralind og til suðurs afmarkast það af veghelgunarsvæði Arnarnesvegar.

Nýjustu greinarnar

Tengdar greinar