5.600 nýjar íbúðir í Kópavogi

Áætlað er að fjölgað geti um 5.600 íbúðir í Kópavogi á næstu tveimur áratugum á þeim sex svæðum í bænum þar sem fjölgun verður mest. Skipulagsáform og húsnæði í byggingu í bænum voru til kynningar á sýningunni Verk og vit í Laugardalshöll um sl. helgi.

Þessi fjölgun þýðir fjölgun íbúa um 15.000 um það bil gangi áætlanir eftir, en íbúar í dag eru tæplega 40.000.

Þau hverfi í Kópavogi þar sem gert er ráð fyrir mestri fjölgun eru Kársnes, miðbær Kópavogs, Smárinn, Glaðheimar, Vatnsendahvarf og Vatnsendahlíð.

Tvö síðastnefndu hverfin eru ný. Skipulagning á því fyrrnefnda stendur yfir en þar er gert ráð fyrir 500 íbúðum, lágreistri og vistvænni byggð, með bæði sérbýli og fjölbýli.

Kort sem sýnir helstu uppbyggingarsvæði í Kópavogi á næstu tveimur áratugum. Mynd og kort/Kópavogsbær

Á Kársnesinu eru áætlanir um 1.390 íbúða fjölgun til ársins 2040.

Á miðbæjarsvæðinu og í Auðbrekku er gert ráð fyrir 1.600 íbúða fjölgun. Það er til viðbótar við svonefndan Traðarreit eystri við Digranesveg en framkvæmdir þar hófust í ársbyrjun.

Í Smáranum er gert ráð fyrir fjölgun um 760 íbúðir í fjölbýlishúsum í svæðiskjarnanum við Smárann.

Í Glaðheimum hefur verið skipulagður nýr hverfishluti með 500 íbúðum, bæjargarði og fjölbreyttu verslunar og þjónustuhúsnæði. Byggingarréttur í hverfinu verður auglýstur til úthlutunar á næstunni.

Áður hefur verið greint frá Vatnsendahvarfinu en það stendur þar sem útvarpsmöstur Ríkisútvarpsins voru, við Hvarfahverfi í Kópavogi. Loks má þess geta að það hyllir undir að hægt verði að hefja skipulagsvinnu í Vatnsendahlíð og er stefna að því að sú vinna hefjist á næstu árum. Þar verður skipulagt skólahverfi, það síðasta á bæjarlandi í Kópavogi.

Það er stórhugur í Kópavogi

„Það er stórhugur í Kópavogi og við erum hér bæði að vinna með þéttingu byggðar og ný hverfi. Við sjáum að það hefur verið mikil ánægja með nýtt húsnæði sem hefur risið undanfarin ár, í Smáranum, austari hluti Glaðheima og svo á Kársnesinu. Sá fallegi bæjarhluti er að ganga í endurnýjun lífdaga þessi árin og mun halda áfram að þróast á næstu árum,“ segir Ármann Kr. Ólafsson bæjarstjóri Kópavogs.

Áform um fjölgun íbúða er að finna í nýsamþykktu Aðalskipulagi Kópavogs sem hefur gildistímann 2019 til 2040.

Markaðsstofa Kópavogs annast framkvæmd sýningarinnar í samvinnu við Kópavogsbæ og byggingaraðila í Kópavogi.

Forsíðumynd: Ný fjölbýlishús í Smárahverfi. Í baksýn eru nýbyggingar í austurhluta Glaðheimahverfis og fyrir framan það autt svæði þar sem vesturhluti hverfisins mun rísa.

Nýjustu greinarnar

Tengdar greinar