5.171 erlendur ríkisborgari búsettur í Kópavogi

Þjóðskrá birti í síðustu viku upplýsingar um erlenda ríkisborgara búsetta á Íslandi, en Alls voru 68.419 erlendir ríkisborgarar skráðir með búsetu hér á landi þann 1. maí sl. og fjölgaði þeim um 3.834 einstaklinga frá 1. desember 2022 eða um 5,9%.

Í Kópavogi voru þann 1. maí sl. 5.171 erlendur ríkisborgari búsettur í bænum, sem er 12,9% af bæjarbúum, sem er töluvert lægra meðaltal en fyrir landið allt, þar sem hlutfall erlendra ríkisborgara er 17,4%. Í nágrannasveitarfélögunum Garðabæ og Hafnarfirði er hlutfall erlendra ríkisborgara 17% í Hafnarfirði og 6,3% í Garðabæ.

Alls voru 40.013 íbúar búsettir í Kópavogi 1. maí sl. af þeim voru 34.842 íslenskir ríkisborgarar og 5.171 erlendir ríkisborgara eins og áður segir.

Meðalaldur í Kópavogi er 38,6 ár

Meðalaldur íbúa í Kópavogi er aðeins 38,6 ár og elsti Kópavogsbúin er 104 ára. Þess má geta að í nágrannasveitarfélögunum, Garðabæ og Hafnarfirði, þá er meðalaldur í Garðabæ, 38,1 ár og í Hafnarfirði 37,2 ár.

Úkraínskum ríkisborgurum fjölgar mest

Varðandi landið allt þá hefur Úkraínskum ríkisborgurum fjölgað um 33,4% frá 1. desember 2022, en alls voru 3.021 úkraínskir ríkisborgarar skráðir til heimilis á Íslandi samkvæmt Þjóðskrá, sem er fjölgun um 756 einstaklinga á tímabilinu. Sömuleiðis hefur orðið umtalsverð fjölgun ríkisborgara frá Rúmeníu eða um 9,6% sem eru 348 einstaklingar á umræddu tímabili og eru nú 3.971 einstaklingar með rúmenskt ríkisfang búsettir hér á landi. Pólskum ríkisborgurum fjölgaði á ofangreindu tímabili um 1.101 einstaklinga eða um 4,7% og eru pólskir ríkisborgarar með lögheimili á Íslandi nú 24.397 samtals.

Einnig er áhugavert að skoða hlutfallslega fjölgun frá 1. desember 2022 til 1. maí , þar ber að nefna að hlutfallslega fjölgun frá Palestínu er 33,2% sem eru 103 einstaklingar og hlutfallsleg fjölgun frá Belarús er 40% eða 12 einstaklingar.

Á sama tímabili fjölgaði íslenskum ríkisborgurum um 611 einstaklinga eða um 0,2%. Hér má sjá töflu yfir fjölda íbúa eftir ríkisfangi þann 1. maí 2023 til samanburðar við stöðuna 1. desember 2019-2022.

Nýjustu greinarnar

Tengdar greinar