38 bætingar og 11 verðlaun

Það er nóg að gera hjá iðkendum Blika sem æfa frjálsar íþróttir á öllum aldri þessa dagana. Það var vaskur hópur keppenda sem mætti til leiks á Egilsstöðum um þar síðustu helgi til að taka þátt í Meistaramóti Íslands 11-14 ára. Það er ekki ofsögum sagt að hópurinn hafi staðið sig frábærlega og eftir standa fjölmargar bætingar, met og góðar minningar. Feiknasterkur hópur 12 ára pilta gerðu sér lítið fyrir og urðu Íslandsmeistarar í sínum aldursflokki en Breiðablik endaði í 6. sæti í heildastigakeppni mótsins. 12 ára piltar urður einnig Íslandsmeistarar innanhúss í vetur og því ljóst að framtíðin er björt.

Mikið var um bætingar hjá Blikum á MÍ 11-14 ára, alls 38, og verður það að teljast gott hjá 10 manna hópi.Krakkarnir sóttu einnig alls 11 verðlaun á mótinu, 4 gull, 5 silfur og 2 brons. Má þar einna helst nefna að Patrekur Ómar Haraldsson setti mótsmet í 600 metra hlaupi 12 ára pilta þegar hann hljóp á 1:45,16.Yfirþjálfari hópsins, Albert Borges Moreno, segist stoltur af sínu fólki enda hafi hver og einn keppandi staðið sig ákaflega vel.

Nýjustu greinarnar

Tengdar greinar

Vefkökur og persónuvernd

Vefur kgp.is notast við vefkökur í þeim tilgangi að veita þér sem bestu upplifun þegar þú heimsækir okkur á vefnum.  Vefkökurnar eru vistaðar í vafranum þínum og þjóna m.a. þeim tilgangi að kerfið "þekkir þig" þegar þú kemur aftur á vefinn okkar.  Þannig þarftu t.d. ekki að fara aftur í gegnum samþykktarferlið fyrir vefkökur, ert ekki spurð(ur) aftur og aftur hvort þú vilt skrá þig á póstlista eða um aðra virkni sem þú hefur annað hvort samþykkt eða hafnað í fyrri heimsóknum o.fl. o.fl.

Þú getur stillt vefkökurnar hér til vinstri.

Með kærri kveðju,
Starfsfólk KGP.is vefsins