340 milljónum varið í framkvæmd verkefna – Hugmyndasöfnun í Okkar Kópavogur hafin

Hugmyndasöfnun í Okkar Kópavogi er hafin en frá 12. september til 9. október verður hægt að koma hugmyndum á framfæri á hugmyndavef verkefnisins.

Í Okkar Kópavogi gefst kostur á að leggja fram hugmyndir og eru íbúar hvattir til þess að gefa ímyndunaraflinu lausan tauminn.

Markmið verkefnisins er að hvetja íbúa til að taka þátt í málefnum sem varða nærumhverfi þeirra, fá þá til að leggja fram hugmyndir og forgangsraða og útdeila fjármagni í smærri framkvæmdir á vegum bæjarins með íbúakosningu.

Verkefnið í heild sinni er í þremur liðum; hugmynd, kosning og framkvæmd. Samtals fara allt að 100 hugmyndir áfram í kosningu en kosning fer fram í ársbyrjun 2025.

Alls verður um 340 milljónum varið í framkvæmd verkefna á árunum 2025 til 2027.

Nýjustu greinarnar

Tengdar greinar

Vefkökur og persónuvernd

Vefur kgp.is notast við vefkökur í þeim tilgangi að veita þér sem bestu upplifun þegar þú heimsækir okkur á vefnum.  Vefkökurnar eru vistaðar í vafranum þínum og þjóna m.a. þeim tilgangi að kerfið "þekkir þig" þegar þú kemur aftur á vefinn okkar.  Þannig þarftu t.d. ekki að fara aftur í gegnum samþykktarferlið fyrir vefkökur, ert ekki spurð(ur) aftur og aftur hvort þú vilt skrá þig á póstlista eða um aðra virkni sem þú hefur annað hvort samþykkt eða hafnað í fyrri heimsóknum o.fl. o.fl.

Þú getur stillt vefkökurnar hér til vinstri.

Með kærri kveðju,
Starfsfólk KGP.is vefsins