282 þúsund gestir og 48% aukning

Árið 2022 sóttu 282.000 gestir menningarhús Kópavogsbæjar heim sem er 48% aukning frá árinu áður. Þetta er metaðsókn í heildarfjölda gesta en metið var síðast slegið árið 2019, árið áður en Covid-19 faraldurinn reið yfir, þegar gestaheimsóknir voru 280.000. Gestafjöldi í menningarhúsunum er þá orðinn meiri en fyrir faraldur, en menningarhúsin standa saman af Bókasafni Kópavogs, Héraðsskjalasafni Kópavogs, Gerðarsafni, Náttúrufræðistofu Kópavogs og Salnum tónlistarhúsi.

Alls 64.022 gestir sóttu alla þá viðburði sem boðið var upp á í menningarhúsunum og voru að meðaltali 29% fleiri gestir á hverjum viðburði ef miðað er við metárið 2019.

Ástríða og metnaður starfsfólksins

„Þegar horft er yfir litríkt og fjölbreytt starfsár menningarmála árið 2022 endurspeglast sú ástríða og metnaður sem starfsfólk menningarmála leggur í störf sín. Stórauknar aðsóknartölur síðasta árs sýna einnig að breiður hópur gesta kann vel að meta þann fjölbreytileika menningarviðburða sem boðið var upp á. Forstöðumenn menningarhúsanna hafa stýrt starfseminni af miklum hugmyndaauðgi og sköpunarkrafti og notið þar liðsinnis verefnastjóra menningarmála og starfsmanna sinna“, segir Soffía Karlsdóttir forstöðumaður menningarmála í Kópavogi.

Nýjustu greinarnar

Tengdar greinar

Vefkökur og persónuvernd

Vefur kgp.is notast við vefkökur í þeim tilgangi að veita þér sem bestu upplifun þegar þú heimsækir okkur á vefnum.  Vefkökurnar eru vistaðar í vafranum þínum og þjóna m.a. þeim tilgangi að kerfið "þekkir þig" þegar þú kemur aftur á vefinn okkar.  Þannig þarftu t.d. ekki að fara aftur í gegnum samþykktarferlið fyrir vefkökur, ert ekki spurð(ur) aftur og aftur hvort þú vilt skrá þig á póstlista eða um aðra virkni sem þú hefur annað hvort samþykkt eða hafnað í fyrri heimsóknum o.fl. o.fl.

Þú getur stillt vefkökurnar hér til vinstri.

Með kærri kveðju,
Starfsfólk KGP.is vefsins