218 fyrirmyndarfyrirtæki og 152 framúrskarandi fyrirtæki staðsett í Kópavogi

Af alls 1.643 fyrirmyndarfyrirtækjum á Íslandi eru 218 þeirra staðsett í Kópavogi samkvæmt úttekt Viðskiptablaðsins og Keldunnar yfir Fyrirmyndarfyrirtæki í rekstri fyrir árið 2024 og fjölgar þeim um 11 frá því í fyrra.

13,5% staðsett í Kópavogi

Alls eru 152 Framúrskarandi fyrirtæki staðsett í Kópavogi samkvæmt árlegri útnefningu Creditinfo og fækkar þeim um 10 frá því í fyrra, en í öllum tilvikum eru þessi 152 Framúrskarandi fyrirtæki einnig Fyrirmyndarfyrirtæki. Alls eru 1.133 fyrirtæki sem teljast til Framúrskarandi fyrirtækja í ár og af þeim eru því 13,5% staðsett í Kópavogi. Sex fyrirtæki í Kópavogi eru á topp 20 lista Framúrskarandi fyrirtækja yfir stór, meðalstór eða lítil fyrirtæki, en þau eru Heimar hf, sem er í 16. sæti og Festi hf sem er í 20 sæti á lista yfir stór fyrirtæki, Rafholt sem er í 6. sæti á lista yfir meðalstór fyrirtæki og Intenta ehf, sem er í 16. sæti, Nitro Sport ehf, sem er í 19. sæti og GSG ehf, sem er í 20. sæti á lista yfir lítil fyrirtæki.

Nýjustu greinarnar

Tengdar greinar

Vefkökur og persónuvernd

Vefur kgp.is notast við vefkökur í þeim tilgangi að veita þér sem bestu upplifun þegar þú heimsækir okkur á vefnum.  Vefkökurnar eru vistaðar í vafranum þínum og þjóna m.a. þeim tilgangi að kerfið "þekkir þig" þegar þú kemur aftur á vefinn okkar.  Þannig þarftu t.d. ekki að fara aftur í gegnum samþykktarferlið fyrir vefkökur, ert ekki spurð(ur) aftur og aftur hvort þú vilt skrá þig á póstlista eða um aðra virkni sem þú hefur annað hvort samþykkt eða hafnað í fyrri heimsóknum o.fl. o.fl.

Þú getur stillt vefkökurnar hér til vinstri.

Með kærri kveðju,
Starfsfólk KGP.is vefsins